23.9.2013 | 16:57
Frýs hagkerfið 2014?
Yngvi Harðarson hagfræðingur er stofnandi og framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækis á svið fjármála. Fyrirtækið heitir því frumlega nafni Analytica. Í frétt nr 6 er spáð í ástand og horfur í efnahagsmálum. Því er spáð að hagvöxtur á þessu ári verði 1%-2% og umtalsverðar líkur eru á samdrætti á næsta ári. Samdráttur mun hefjast á tveimur næstu mánuðum. Spánni til grundvallar liggja gögn um aflamagn, innflutning, debetkortaveltu,ferðamannafjölda, væntingavísitölu Gallup og heimsvísitölu hlutabréfa(!). Leiðandi hagvísir gefur til kynna að á næsta ári verði samdráttur. Leiðandi hagvísir á að nema þætti sem hafa áhrif á framleiðslu eða breytingar á framleiðslu. Um spár í hagfræði hefur ýmislegt verið sagt. Hagfræðin er félagsvísindi og um leið og spáin er komin fram og orðin opinber hefur hún áhrif á gerendur í hagkerfinu. Mikilvægustu gerundur eru þeir sem stjórna eða hafa áhrif á fjárfestingar. Þeir eiga næsta leik.
23.9.2013 | 13:56
Er evran góð fyrir Þýskaland?
23.9.2013 | 12:17
Hvað er að Útlendingastofnun? 2. hluti.
23.9.2013 | 10:49
Hvað er að Útlendingastofnun? 1. hluti.
23.9.2013 | 09:58
Stórsigur A Merkel og ný stjórnarmyndun.
Bloggfærslur 23. september 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar