Staðan á vinnumarkaði í ágúst 2013.

Það er að lifna yfir vinnumarkaðinum. Í ágúst voru 8300 atvinnulausir eða 4.% en voru fyrir ári 10100 eða 5.7%. Í ágúst voru starfandi 180 þúsund eða en fyrir einu ári voru það 166300. Atvinnuleysi kvenna hefur minnkað um 2.5%. Utan vinnumarkaðar eru 38700. Sem sagt ; fjöldi á vinnumarkaði er að vaxa, fjöldi starfandi er að aukast, fjöldi utan vinnumarkaðar er að minnka og atvinnulausum er að fækka. Allar breytingar eru litlar.  Heildarvinnustundum eða ársverkum hefur fjölgað um 3.4%. Þessi jákvæða þróun er nokkuð á skjön við þróun annarra stærða. Einkaneysla hefur dregist saman það sem af er árinu og kortavelta minnkað. Ferðum  Íslendinga til útlanda hefur fækkað það sem af er árinu. Atvinnuvegafjárfesting, önnur en skip og flugvélar, jókst hins vegar það sem af er árinu. Misvísun talna getur stafað af skekkju í þeim sjálfum.

Goðsagnir um Hrunið 2008.

Fall íslenska bankakerfisins hafði víðtækar afleiðingar í þjóðlífinu og vakti víða mikla athygli erlendis. Útlendingar hafa ekki beinan aðgang að íslenskum veruleika og heimildum. Eitthvað mun því brenglast og skolast til. Slíkt þjóðfélagslegt umrót er jarðvegur fyrir myndun goðsagna sem eru nokkurs konar helgisögur nútímans. Ein slík goðsaga er að íslenska ríkið hafi ákveðið að láta bankana falla. Í reynd var aldrei um neitt val að ræða. Efnahagsreikningur bankanna var margföld landsframleiðsla Íslands og enginn möguleiki að koma þeim til bjargar. Tilraunir voru gerðar til að bjarga hluta kerfisins en þær voru vonlausar. Önnur goðsögn er sú að ríkisvaldið hafi ekki borið neinn skaða af falli bankanna. Þetta er rangt. Beinn kostnaður ríkissjóðs var á bilinu 20% til 25% af landsframleiðslu. Þriðja goðsögn er að Íslendingar muni aldrei greiða eina einustu krónu til breskra og hollenska aðila vegna Icesave. Greiðslur Landsbankans til þrotabús gamla Landsbankans eru hluti af þessum greiðslum. Um er að ræða stórt skuldabréf sem verður greitt 2014 til 2018. Upphæðin er 5% af vergri landsframleiðslu á hverju ári. Fjórða goðsögn er að krónan hafi bjargað Íslandi. Samhliða hruni bankanna  hrundi krónan. Sýnt hefur verið að krónan er sjálfstæður sveifluvaldur. Lágt raungengi er hagstætt útflutningsgreinum og sú hefur reyndin orðið. Ferðaþjónustan hefur vaxið en heildarkvóti breytist ekki sveiflur í gengi og áliðnaðurinn á í djúpri og langvarandi kreppu. Krónan er í höftum og gjaldeyrishöftin eru kostnaðarsöm og hindra fjárfestingar.Kostnaður við að viðhalda örmynt er mikill. Það er því líklegt að kostnaðar og ávinnings greining leiði í ljós að krónan ein hafi ekki bjargað Íslandi. Fimmta goðsögn. Ríkir og fjársterkir voru varðir eftir hrun. Almenn niðurfelling skulda um t.d. 25% hefði bitnað á lífeyrissjóðum og á endanum á rétthöfum lífeyrisréttinda. Hún hefði auk þess komið mjög misjafnt niður á tekju-og eignahópum. Sjötta goðsögn. Áætlun AGS og framkvæmd hennar hafði neikvæð áhrif. Hún vann gegn uppbyggingu. Reyndin var sú að stefna stjórnvalda var ekki hörð niðurskurðarstefna heldur var skorið niður samhliða því að örfa hagkerfið með aðgerðum í anda Keynes. (Eigin túlkun á örfáum atriðum úr grein Þórólfs Matthiassonar. Hagfræðistofnun. Vinnuplagg. Ágúst 2013.)

Breytir Sigurður Ingi stjórnskipan landsins?

Á vef Umhverfis- og auðlindaráðuneytis má lesa að lög um náttúruvernd  frá 2013 verði "afturkölluð". Þar segir að ráðherrann hafi ákveðið að "afturkalla" lög sem samþykkt voru á Alþingi í vor. Orðalag er eitt og það getur verið óheppilegt og sérkennilegt. Það getur lýst valdhroka og þjösnagangi þess sem situr í valdastól. Auðvitað er minnst á það í tilkynningunni að ráðherran hyggist leggja fram frumvarp á Alþingi en miðað við samhengið mætti ætla að það væri nánast formsatriði. Hvaða ályktanir má draga af þessu? Hátt hreykir heimskur sér eða dramb er falli næst?

Bloggfærslur 25. september 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband