Eru fyrirtæki að flýja Ísland?

Fyrir nokkru skrifaði formaður Samtaka iðnaðarins grein. Hann hafði áhyggjur að samkeppnishæfni landsins og óttaðist atgerfisflótta og flótta fyrirtækja úr landi. Nú hafa allmörg fyrirtæki flutt höfuðstöðvar sínar frá landinu. Gjaldeyrishöft og aðgengi að fjármagni skipta miklu. Forstjórar stórra fyrirtækja eins og Össurar hafa marglýst því yfir að ekki sé hægt að rekja fyrirtæki  á alþjóðlegum markaði með höfuðstöðvar á Íslandi og örmynt sem gjaldmiðil. Margir óttast að fleiri fyrirtæki muni yfirgefa landið. En nokkur fyrirtæki er að koma til landsins. Nefna má líftæknifyrirtæki sem ætlar að hefja lyfjaframleiðslu hér á landi. Það er vegna þess að einkaleyfislöggjöf Íslands er slíkum fyrirtækjum sem framleiða samheitalyf hagstæð. Hjálmar Gíslason hjá DataMarket hefur skrifað mjög upplýsandi grein. Hann skrifar um íslensk sprotafyrirtæki og skýrir á ljósan hátt þær takmarkanir sem fyrirtækin búa við hér. Fjármögnunarmöguleikar eru litlir, þekking á alþjóðlegri markaðssetningu er lítil og fólk með sérmenntun er of fátt til að standa undir örum vexti. Það ríkir hörð samkeppni um það að laða til sín sprotafyrirtæki. New York og Boston eru borgir sem bjóða fyrirtækjum afar hagstætt umhverfi. Menn þurfa að glöggva sig vel á hver áhrif gjaldeyrishaftanna eru að mati Hjálmars. Ríkið þarf að styðja sprotafyrirtækin með framlögum úr Tækniþróunarsjóði og með skattaafslætti vegna rannsóknar og þróunarstarfs. Skattaafslátturinn er sérlega mikilvægur.

Hvað er Rightlivelihood Award?

Þetta er stofnun sem er skrásett í Svíþjóð og hefur skrifstofu í Stokkhólmi. Hún veitir verðlaun til að styrkja einstaklinga , rannsóknir eða menntun. Stofnunin vill útrýma fátækt, vinna að réttlæti, friði og jafnvægi í umhverfismálum. Verðlaunin eru stundum nefnd hin Nóbelsverðlaunin eða annars konar Nóbelsverðlaun. Þessi verðlaun hafa verið veitt síðan 1980 og í dag nema þau 57000 evrum.  Raji Sourani, lögfræðing í Palestínu voru veitt verðlaun fyrir baráttu sína í þágu mannréttinda. Paul Walker er bandarískur stjórnmálafræðingur sem hefur barist í áratugi fyrir eyðingu efnavopna. Denis Mukwege er læknir í Kongó en hann hefur meðhöndlað og læknað tugþúsundir fórnarlamba nauðgara. Hans Herren er landbúnaðarfræðingur frá Sviss sem rannsakað hefur baráttu gegn meindýrum með lífrænum aðferðum. Oft skipta peningarnir minnstu máli. Mestu skiptir umræða og athygli í fjölmiðlum sem veitir mikilvæga vernd.

Sigurður Ingi sættist við sjálfan sig.

Sigurður Ingi ritar grein í Fréttablaðið. Þar kennir ýmissa grasa. Hann telur að sjávarútvegur hafi verið "ein helsta" undirstaða farsældar hér á landi. Það er óþarfi að taka svona vægilega til orða. Sjávarútveguinn var helsti drifkraftur á nánast öllum hagvaxtarskeiðum á síðustu öld. Ráðherran nefnir síðan hlutdeild sjávarafurða í vöruútflutningi en ekki hlutfall greinarinnar í heildarútflutningstekjum sem er eðlilegt að gera. Ráðherrann virðist lítið hafa ferðast um sjávarbyggðir í starfi sínu sem dýralæknir. Fjöldi hátæknifyrirtækja kemur honum mjög á óvart. Nú, svo lengi lærir sem lifir. Ráðherrann vill að allir séu sáttir. Hann hefur rætt við fjölmarga útgerðarmenn á undanförnum vikum og þeir eru allir reiðubúnir að greiða veiðigjöld. (Þetta er ekki háð hjá bloggara!)Ráðherran bendir á mikilvægi vöruþróunar, nýsköpunar og rannsókna innan fyrirtækja. Þetta er mikilvægt mál og hefur verið í áratugi. Íslensk fyrirtæki eru yfirleitt það lítil að þau geta ekki sinnt þessu hvert fyrir sig. Þess vegna hefur samstarf og samvinna fyrirtækja á afmörkuðum sviðum. Ráðherran bendir á sjálfsagða hluti; Samfélagsleg þátttaka útgerðarfyrirtækja er mikilvæg á landsbyggðinni og sérstaklega í sjávarþorpum. Auðvitað þannig hefur þetta lengi verið . Niðurstaða af greininni: sveitamaður kynnist sjávarbyggðunum.

Bloggfærslur 26. september 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband