Þýskir jafnaðarmenn ákveða viðræður við hægri flokkana.

Nú í kvöld ákvað miðstjórn flokksins að hefja viðræður. 250 fulltrúi tóku þessa ákvörðun. Í yfirlýsingu segir að almennir flokksmenn eigi að taka þátt í viðræðuferlinu. Jafnaðarmenn eru opnir fyrir viðræðum en ljóst er að þeir hafa ákveðnar áherslur. Kristilegir demókratar hafa þegar gefið til kynna að flokkarnir geti nálgast í skattamálum. Jafnaðarmenn munu leggja áherslu á fjölskyldustefnu og jafnrétti kynjanna. Þeir vilja efla velferðarkerfið og  atvinnu. Flokksforustan vill að allir félagar flokksins en þeir eru 470000 taki endanlega ákvörðun um stjórnarsamstarf. Skoðanakannanir benda til þess að meirihluti flokksfélaga vilji stjórnarsamstarf við flokka kristilegra demókrata. Kanslaraefni flokksins Peer Steinbruck hefur dregið sig til baka úr forystu flokksins. Það eru því formaður flokksins Gabriel og formaður þingflokksins Steinmeyer sem munu fara fyrir viðræðum.

Sigurður Ingi bullar innan lands og erlendis.

Framsóknarflokkurinn virðist afar óheppinn með ráðherra og reyndar þingmenn líka. Sigurður Ingi hefur verið afar yfirlýsingaglaður. Hann hafði uppi ýmis óheppileg ummæli um undirskriftasöfnun gegn lækkun veiðigjalds. Auk þess var framkoma hans í garð forsvarsmanna söfnunarinnar afar klaufaleg. Næst kemur hann með stórkallalega yfirlýsingu um afturköllun (nýyrði í þinglegri meðferð) laga um náttúruvernd. En nú hefur ráðherra landbúnaðarmála tjáð sig um lífræna ræktun á erlendri grund. Ráðherran virðist ekki hafa verið vel undirbúin. Elísa Guðmundssson framkvæmdastjóri Gló hefur gagnrýnt ræðuna harðlega og skilur ekkert hvað ráðherrann hvað ráðherrann var að gera á fundinum. Oddný Anna Björnsdóttir hefur einngi gagnrýnt ræðuna harðlega. Hún segir ráðherran hafa bullað um sjálfþurftarbúskap. Lífræn framleiðsla  hér er með því minnsta sem gerist í Evrópu en ljóst er að vaxtarmöguleikar eru afar miklir. Við verðum að vona víðsýni ráðherrans aukist með vaxandi þekkingu og næsta ræða á erlendri grund verði mun betri. Hvað heitir annars ræðuskrifari ráðherrans?

Íslam eru fjölmenn trúarbrögð.

1.6 milljarður manna aðhyllist Islam eða um 23% af öllum jarðarbúum. Árið 2010 voru 49 ríki í heiminum þar sem múslimar voru í meirihluta. 62% allra múslima búa í Suður og Suðaustur Asíu. 12.7% allra míslima búa í Indónesíu. Í Pakistan og Indlandi búa samanlagt 22% alls fjöldans. 20% múslima búa í Arabalöndunum. Í eftirtöldum löndum eru múslimar yfir 90% allra íbúa : Alsír, Afganhistan, Azerbaijan, Bangladesh, Komoros, Djibouti, Egyptaland, Gambia, Íran, Írak, Jórdanía,Kovoso, Líbýa, Mali , Maldives, Mauritania, Mayotte, Marroko, Niger, Pakistan, Palestína, Saudi Arabía, Senegal, Somalia,Sýrland, Taikistan, Túnis, Tyrkland, Turkmenistan, Uzbekistan, Vestur Sahara, og Yemen.

Bloggfærslur 27. september 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband