Bankahruni ýtt úr vör.

Sigurður G Guðjónsson lögmaður skrifar grein í pressan.is og minnir á dagsetninguna 29.9 2008. Að morgni  þessa dags tilkynnti þáverandi formaður stjórnar Seðlabankans að ríkið myndi eignast 75% hlut í Glitni hf. Á þeirri stundu voru engin skrifleg gögn til um þessa afdrífaríku ákvörðun. Frjálshyggjan komst til valda á Íslandi á síðasta áratug 20. aldar. Þessi stefna hafði afgerandi áhrif á skipan efnahagsmála hér á landi. Mikið vald var fært frá hinu opinbera sviði til einkaaðila. Eðlilega gátu stjórnmálamenn ekki stýrt öllum einkaaaðilum. Sköpunarverkið snerist gegn skapara sínum. Einkavæðing í fámennu klíkusamfélagi getur aðeins orðið með einum hætti. Stjórnmálamennirnir hafa allir sloppið heilir úr þessum hildarleik. Allir nema Geir Haarde.

Siemens fækkar störfum um 15000.

Siemens er eitt af þekktustu fyrirtækjum heims. Það var stofnað 1847 í Berlín. Werner Siemens og Johan Halske stofnuðu fyrirtækið. Starfsmenn eru um 370 þúsund í 190 löndum. Í Þýskalandi mun störfum fækka um 5000 en talsmenn fyrirtækisins útiloka uppsagnir. Sparnaðaráætlunin heitir Siemens 2014 og hófst fyrir einu ári. Ætlunin er að spara sex milljarða evra. Helmingur starfanna 15 þúsund verður farinn haustið 2014 með því að stöðva nýráðningar í ákveðnum hlutum fyrirtækisins. Sparnaðaráætlunin verður framkvæmd í samráði við verkalýðsfélög og fyrirtækjaráð. Í þýskum fyrirtækjum hafa starfsmenn áhrif á ákvarðanir fyrirtækisins í fyrirtækjaráði.

Ed Milliband og breski Verkamannaflokkurinn.

Styrmir Gunnarsson virðist hafa áhyggjur af jafnaðarmannaflokkum í Evrópu auk þess að vera í pólitísku vanlíðunarkasti ef marka má skrifin á Evrópuvaktinni. Honum tekst þó að sinna daglegu skylduverki sínu sem að að hnýta í Samfylkinguna. Hvað um það. Ed Miliband var kosinn formaður Verkamannaflokksins fyrir þremur árum. Það hefur verið sagt að hann stundi "zen jafnaðarstefnu" sem felur í sér rólega yfirvegandi nálgun á stjórnmálin og tækifæri til að horfa til lengri tíma. Við erum ein þjóð sagði Miliband í ræðu fyrir þremur árum. Efnahagsleg og félagsleg samstaða er í fyrirrúmi en það er hún svo sannarlega ekki hjá Íhaldsflokki Cameron. Miliband hefur haft sitt í gegn í mörgum málum. Strangari löggjöf hefur verið sett um fjölmiðla. Hann gagnrrýndi stefnu Camerons gagnvart Sýrlandi harðlega. Hann vill breyta tengslum Verkamannaflokksins við verkalýðsfélögin og stórefla innra flokksstarf,m.a. með mikilli fjölgun flokksfélaga. Samkvæmt skoðanakönnunum er fylgi flokksins á bilinu 37% til 39% og flokksstarfið sjálft einkennist af eindrægni fremur en sundurlyndi. Miliband á ýmislegt eftir óunnið. Í skoðanakönnunum kemur hann lakar út en Cameron sem þó stendur sig langt í frá glæsilega.

Guðlaugur Þór skilur ekki hagræðingu.

Þingmaðurinn skrifar grein í pressuna.is og segir myndina sem blasi við einfalda og dökka. Ríkissjóður er rekinn ár eftir ár með tapi og það gengur ekki. Þetta er rétt svo langt sem það nær en leiðir til úrlausnar eru margar. Guðlaugur Þór virðist vera algerlega blindur á sumar þeirra. Hann minnist hvergi á að ríkið geti aflað sér aukinn tekna og skapað jöfnuð þannig. Annað augar sér ekki og hitt augað sér illa. Áætlun AGS um frumjöfnuð sem gerð var 2008 stóðst ekki. Það er rétt en hvernig væri ástandið í menntamálum, heilbrigðirmálum og fleiri málum ef henni hefði verið fylgt mjög hart eftir? GÞÞ veltir því ekkert fyrir sér heldur les uppúr hagfræðibókum að kostnaðurinn muni lenda á komandi kynslóðum. Auðvitað minnist GÞÞ ekkert á hrunið. það er eins og áætlun AGS hafi af ástæðulausu dottið af himnum ofan. GÞÞ minnist á skýrslu um fjölda ríkisstarfsmanna og hann fer villandi með tölur í þeim augljósa tilgangi að koma höggi á fyrrvernadi umhverfisráðherra. Ársverkum hjá ríkinu fjölgaði um 198 frá 2007. Nú bætir GÞÞ við ; en fækkaði um 18 þúsund á almennum markaði. Því miður er þetta ekki útfært nánar en að stilla þessu svona upp er fáránlegt. 2007 var ofhitnað bólusamfélag við það að springa. GÞÞ minnist ekkert á stofnanir Menntamálaráðuneytisins þar þar var mest fjölgun ársverka. Hann segir hins vegar að starfsmönnum á vegum Umhverfisráðuneytis hafi fjölgað um 130. Hér var nauðsynlegt fyrir GÞÞ að tala um starfshlutfall þessara starfsmanna eða ársverk en það gerir hann ekki. Engra skýringa er leitað enda er niðurstaðan fyrirframgefin ; það ríkir agaleysi í ríkisrekstrinum. Í lokin hafnar GÞÞ flötum sparnaði (væntanlega ekki í samráði við BB) en hann vill gera kerfisbreytingar. Hverjar þær eru vitum við ekki.

Bloggfærslur 29. september 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband