3.9.2013 | 14:10
Norska Stórþingið verður svart af olíu.
3.9.2013 | 12:27
Forsætisráðherra á Aljazeera; athugasemdir útlendinga.
3.9.2013 | 10:40
Leiðari Mbl og "vinstri slagsíðan".
Leiðari mbl.is í dag fjallar um Ríkisútvarpið. Þetta mál er ritstjóranum greinilega hugleikið. Þeim mun undarlegra er hversu veik röksemdfærslan er og hversu undarlega röngum tökum málið er tekið. Gleymum því ekki að MBL er rekið og haldið uppi af stórum útgerðarfyrirtækjum sem hafa á undanförnum árum sett mikla fjármuni í að rétta af rekstur blaðsins. Allur fréttaflutningur blaðsins er litaður af eignarhaldi þess. En hvað kemur fram í leiðarum? Fullyrt er að veruleg gagnrýni og almenn hafi beinst að fréttastofu Ríkisútvarpsins. Þetta er einfaldlega rangt. Gagnrýnin er hvorki veruleg né almenn og það sem verst er hún styðst ekki við áreiðanlega þekkingu á fréttaflutningi Ríkisútvarpsins og fréttaskýringaþáttum. Einstakir þingmenn hafa lengi gagnrýnt Ríkisútvarpið, t.d. GÞÞ og ÓBK. Gagnrýni þeirra var afar þröng og takmörkuð. Þeir fengu á Alþingi upplýsingar um viðmælendur Spegilsins. Samkvæmt talningu voru " óeðlilega" margir vinstrisinnaðir fræðimenn sem talað var við. Þetta byggist á undarlegri rökvillu. Menn gefa sér að það séu jafnmargir vinstri-og hægrisinnar á öllum fræðasviðum eða jafnmargir sérfræðingar á öllum sviðum. Á facebook var stofnaður hópur sem átti að sinna eftirliti með "hlutleysi" ruv. Stofnandi var Frosti Sigurjónsson meðal annarra. Nú er "hlutleysi " fjölmiðla ekki til þannig að væntalega var átt við óhlutdrægni. Nálgun málsins var ákflega þröngsýn og sérkennileg hjá þessum hóp. Flestir voru mjög harðir andstæðingar ESB- aðildar og áhugi þeirra algerlega bundinn við þetta mál. Málflutningur þeirra var nánast allur eins. Ruv hafði birt frétt um esb en einn úr hópnum kom með sínar skoðanir á því hvernig fréttin hefði átt að vera ! Þannig var öll röksemdafærslan. Aldrei var fjallað um rannsóknir fjölmiðlafræðinga á Ríkisútvarpinu og fréttum þess og reglur um fréttaflutning. Hópurinn var og er einhvers konar sjálfsstyrkingar- eða hópeflisfyrirbæri. Í leiðaranum er fjallað um öryggishlutverk Ríkisútvarpsins og nefnd tvö dæmi. Þau eru ekki valin af handahófi heldur í áróðursskyni og til þess að koma höggi á stofnunina. Auðvitað er rétt að fjalla um öryggishlutverkið en ekki með þessum hætti. Kjarni málsins er sá að ríkisútvarp í almannaþjónustu gegnir afar miklu hlutverki í lýðræðislegri umræðu. Einkareknir fjölmiðlar eru beint og óbeint háðir eigendum sínum. Ef einkareknir fjölmiðlar ráða feðinni dregur úr gæðum efnis og meiri áhersla er lögð á afþreygingu og skemmtiefni. Reynslan sýnir að eigendur hafa haft bein afskipti af fréttaflutningi einstakra fréttamanna. Ritstjórnarlegt og faglegt sjálfstæði víkur. Gagnrýni leiðarahöfundar-hver sem hann er- er ekki fagleg eða málefnaleg. Hún er hlutiaf pólitískri herferð sem hefur það að takmarki að koma allri fjölmiðlun í landinu undir einkafjármagnið. Hún er því beinlínis ógn við lýðræðislega umræðu.
Bloggfærslur 3. september 2013
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar