Rochus Misch lífvörður Hitlers látinn.

Misch var orðinn 96 ára gamall þegar hann lést í Berlín. Hann var fæddur 1917 og var málari að iðn. Hann gekk í SS og tilheyrði þeirri sveit manna sem sáu m.a. um öryggi Hitlers. Hann virðist hafa verið þýskur Forrest Cump. Hann var þar sem heimssögulegir atburðir gerðust en virðist ekki hafa skilið það sem fram fór. Misch var aldrei félagi í NSDAP(nasistaflokknum). Á yngri árum var hann mikill íþróttamaður. Hann særðist illa í innrás Þjóðverja í Pólland og eftir það fékk hann starf hjá embætti kanslarans. Hitler var í samskiptum við Misch vinsamlegur og hógvær. Misch virðist aldrei hafa kynnst þeim Hitler sem saga mannkyns hefur að geyma. Hann var Hitler undirgefinn og trúr allt til endaloka 3j ríkisins. Rússar tóku hann fastann og fluttu hann til Moskvu. Þar vaar hann yfirheyrður og pyntaður. 1953 var honum sleppt og hann settist að í vesturhluta Berlínar þar sem hann vann í málningavöruverslun vinar síns. Í sjálfsævisögu sinni segist hann hafa hlotið örlög hermanns. (Der Spiegel).
 
 

Börn og aðstandendur fanga.

Í Barnalögum og Barnasáttmála SÞ er börnum tryggður réttur til samskipta og samveru með foreldrum sínum. Af margvíslegum ástæðum getur orðið  aðslilnaður barna við foreldri. Árið 2008 áttu 1.7 milljón barna í USA foreldri í fangelsum. Meirihluti barna lítur á forsjáraðila semforeldri og hefur lítil samskipti við foreldri sem situr í fangelsi. Fangelsi er þó afar mismunandi og sum eru fjölskylduvæn og mæður geta haft börn sín í fangelsinu eða farið með börnum sínum í sumarbúðir. Börn sem eru aðskilin frá foreldrum sínum eru líklegri til að þjást af geðrænum og félagslegum vandamálum síðar á lífsleiðinni. Í öllum fangelsum hér á landi er gert ráð fyrir að fangar fái heimsóknir. Á Litla Hrauni er fjölskylduherbergi sem ætlað er til heimsókna. Gert er ráð fyrir að hver fangi fái heimsókn í hverri viku. Nú eru mun fleiri feður en mæður í fangelsi en ætla má að líf barna raskist meir við fangelsisvist móður. Fangelsisvist brotamanns skapar margvísleg vandamál fyrir aðstandendur og börn. Andlegt álag getur orðið mikið og fer það eftir eðli brotanna. Ef brotið veldur mikill siðferðilegri fordæmingu getur það valdið aðstandendum miklum sársauka. Samfélagið refsar þeim sem saklausir eru.  Í Verndarblaðinu er að finna margvíslegan fróðleik um aðstæður fanga og aðstandenda þeirra. Stofnfundur Verndar var 1959 og eiga samtökin sér alllanga sögu. Formlega tóku þau til starfa 1.2. 1960. Frá árinu 1995 hafa fangar verið vistaðir á Áfangaheimili Verndar. Fangar eru yfirleitt á bilinu 40 til 60 á ári. Þegar foreldri fer í fangelsi er það aðskilnaður og missir fyrir barnið. Sorg er eðlileg viðbrögð við missi. Börn verða varnarlaus og þarfnast stuðnings. Mikilvægt er að nærsamfélag barnsins-leikskóli og grunnskóli- veiti stuðning. Upplýsa þarf barnið í samræmi við þroska þess. Sterkar tilfinningar togast á hjá aðstadendum. Þeir skammast sín vegna hins brotlega en um leið reyna þeir eðlilega að verja hann. 

Hagur Síldarvinnslunar og grátfundurinn mikli.

Í mai í fyrra var haldinn opinn borgarafundur í Neskaupsstað. Fundarefnið voru tillögur vinstri stjórnar um veiðigjöld. Mikill hiti var á fundinum. Sumir sáu enga framtíð fyrir börnin sín ef veiðigjöld væru sett á. Aðrir sáu fram á að yfir 20 sjómenn myndu missa störf sín. Aðför stjórnvalda að byggðarlaginu. Þetta heitir að setja upp leikrit. Ef nógu vel er leikið munu menn trúa því sem sagt er. Áhorfendur í sal eru hluti leikritsins. Það er ekki tilviljanakennt hvernig atburðir verða að fréttum. Hugsum okkur tvö útgerðarmenn A og B. Útgerðarmaður A á góðan bát en vantar meiri aflaheimildir til að nýta bátinn betur. Útgerðarmaður B á bát sem á eru 5 menn en hann er mjög skuldugur og vill selja. Aflaheimildir eru áfastar skipum þannig að útgerðarmaður A kaupir bátinn af B til þess að fá auknar aflaheimildir. Hann ætla sér ekki að reka bátinn þannig að fimm sjómenn missa vinnuna og fara í land. Það má heita hending ef slíkir atburðir komast í fréttir en hvernig ætti störfum á sjó annars að hafa stórfækkað á undanförnum áratugum. Á fundinum á Neskaupsstað var það mikið drama að sjómenn misstu störf en á öllum öðrum tímum er það hversdagslegur atburður. Hagræðing á máli útgerðarinnar. Nú hefur Síldarvinnslan hf sent frá sér fréttatilkynningu. Góðæri er mikið hjá fyrirtækinu öfugt við mörg fyrirtæki og heimili í landinu. Hagnaður fyrir skatta er 8.6 milljarðar. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnskostnað 9.6 milljarðar(Ebitda). Eigiðfjárhlutfall  er 59% og eigið fé 21.9 milljarðar. Veltufjárhlutfall er 2.08% Rekstrartekjur voru 24 milljarðar. 30% af hagnaði mun verða greiddur til hluthafa. Við þökkum fyrir góða leiksýningu. 

Viðsnúningur 2011. Ísland á leið úr kreppunni.

Árið 2009 varð samdráttur landsframleiðslu 6.6 % og árið 2010 4.1% samkvæmt tölum hagstofunnar. Árið 2011 sýndi fyrstu batamerki  en þá varð hagvöxtur 2.7% en í fyrra varð vöxturinn 1.4%. Á evrópskan og bandarískan mælikvarða eru slíkar tölur góðar. BRIC- löndin eru talsvert fyrir ofan sem og Kína og nokkur önnur lönd í Asíu svo sem Vietnam. Á síðasta ári jókst fjárfesting um 5% sem einkum má rekja til kaupa á skipum og flugvélum. Árið 2012 jukust þjóðartekjur um 2.9% og árið áður um 5.8%. Viðskiptakjör versnuðu á síðastliðnu ári. Einkaneysla sem hlutfall af landsframleiðslu hefur verið í sögulegu lágmarki síðastliðin 5 ár. Það er nú 53.7%. Einkaneyslan á síðasta ári var svipuð neyslu ársins 2004 en landsmenn voru 10% fleiri í fyrra.  Hlutfall fjárfestinga af landsframleiðslu hefur verið í mikilli lægð síðast liðin fjögur ár. Það er nú 14.5% en langtímameðaltal OECD landa er nálægt 20%. Að raungildi er fjárfesting síðasta árs svipuð og ársins 1997. Í krónum talið var landsframleiðsla síðasta árs 1698 milljarðar króna. (Hagtíðindi 6.9. 2013)

Bloggfærslur 6. september 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband