Alþjóðlegur dagur læsis 2013.

Hvernig er ástandið ef litið er á allar þjóðir jarðarinnar? 84.1% allra fullorðinna,þ.e. 15 ára og eldri, er læs. Hlutfall kvenna er lægra eða 79.9%. 775.3 milljónir manna eru ólæsar. Þar af eru konur tæp 64%. Læsi ungs fólks á aldrinum 15 til 24 ára er 89.9%. Hlutfall hjá ungum konum er 86.6%. Ungt ólæst fólk er 123 milljónir. Læsi er minnst sunnan Sahara eyðimerkur í Afríku og í Suður-og vestur hluta Asíu. Í 11 löndum heims  er læsi minna en 50%. Í iðnvæddum þróuðum ríkjum er læsi milli 90% og 100%. Ólæsi fullorðinna hér á landi mun vera nálægt 4%. 

Sigur hægri flokka í Noregi?

Samkvæmt könnun blaðsins Klassekampen munu Hoyre og Frp ná meirihluta í norsku koaningunum. Óvissa er þó umtalsverð sérstaklega hvað varðar útkomu litlu flokkanna. Samkvæmt spánni munu áðurnefndir flokkar fá 88 þingmenn og geta myndað meirihluta án samstarfs við Krf og Venstre. Verkamannaflokkurinn og Hoyre eru nánast jafn stórir samkvæmt könnunum og enn á umtalsverður hluti kjósenda eftir að ákveða sig. Afstaða borgaralegu flokkanna til Frp hefur einkennst að tortryggni og vilja til að greina sig frá honum og stefnumálum hans. Innflytjendamálið skipta þar mestu. Það mun ekki verða auðvelt fyrir hægri flokkana að mynda stjórn. Eftir sem áður bendir allt til þess að mynduð verði borgaraleg stjórn eftir kosningar. Spurningin er frekar; hvaða flokkar mynda stjórnina. Núna bendir margt til þess að Framfaraflokkurinn verði í næstu stjórn. 

Veiðigjaldið og biðin eftir innistæðulausum loforðum.

Þeir sem kusu ríkisstjórnarflokkana og tryggðu þeim meirihluta á Alþingi bíða. Beðið er eftir stóru skuldaniðurfellingunni sem lofað var. Kannski gerist eitthvað um áramótin. Vitað er að flöt niðurffelling verðtryggðra skulda gagnast fyrst og fremst þeim sem eiga miklar eignir , skulda mikið og hafa háar tekjur. Mikill meirihluti kjósenda stjórnarflokkanna er ekki í þessum hópi. Beðið er eftir tillögum hagræðingarhópsins ("dauðasveitarinnar"). Hópurinn skiptist í tvennt.Annars vegar eru mjög yfirlýsingaglaðir, auðæstir og klaufalegir Framsóknarmenn sem komið hafa sjálfum sér í bobba með vanhugsuðum yfirlýsingum. Hins vegar Sjálfstæðismenn sem ákaflega lítið hafa tjáð sig við fjölmiðla. Eftir að ríkisstjórnin hafði verið mynduð tóku flestir ráðherrana sér langt og verðskuldað sumarfrí. Af sumum fréttist helst í útlöndum. Sem sagt ; engin brýn og brennandi mál sem þurfti að ganga í. Nokkrir stjórnarliðar virðast hafa fengið fréttaflutning Ríkisútvarpsins á heilann. Hafa þeir deilt þessum þjáningum sínum með þjóðinni í formi yfirlýsinga og greinaskrifa. Undanfarið haf mörg stór fyrirtæki í sjávarútvegi greint frá afkomu sinni. Hún virðist afbragðsgóð; mikill hagnaður, eiginfjárstaða sterk og nægt svigrúm til að greiða hluthöfum ríkulegan arð. Núverandi meirihluti lækkaði veiðigjald á útgerðir sem stunda bolfiskveiðar mjög mikið. Engin hagfræðileg rök lágu til þess. Tveir helstu sérfræðingar landsins í auðlindahagfræði hafa marglýst því yfir að stórar útgerðir geti borið mun hærra gjald. Ríkisstjórnin er því að skera niður skatttekjur ríkissjóðs. Með kaldhæðni mætti segja að það sé væntanlega til að geta skorið enn meira niður á útgjaldahlið. Nú hefur fjármálaráðherra komið með flata 1.5% hagræðingarkröfu á öll ráðuneyti. Það er afar undarlegt að ekki skuli forgangsraðað í ljósi aðstæðna. 

Bloggari vill verða borgarstjóri í Moskvu.

Alexej Nawalny er þekktur gagnrýnandi Putins forseta og stjórnarhátta hans. Í dag er kosið um embætti borgarstjóra og Nawalny bauð sig fram. En líklega verður hann ekki kosinn. Ráðandi öfl hafa ekki áhuga á heiðarlegum kosnningum. Ríkjandi borgarsjóri heitir Sergej Sobjanin. Embætti borgarstjóra Moskvu er afar mikilvægt. Hann er þriðji í valdaröðinni á eftir forseta og forsætisráðherra. Hann hefur víðtæk völd og mun meiri áhrif en t.d forsetar þingsins. Í Moskvu býr einn tíundi hluti Rússa og borgin er fjármálamiðstöð landsins. Samkvæmt skoðanakönnunum mun Sobjanin fá 50% atkvæða og það nægir. Hann er hins vegar ekki vinsæll og þykir þurr tæknikrati. Nawalny hafði verið dæmdur í sýndarréttarhöldum en yfirvöld sáu að sér og lýstu þvi yfir að réttarhöldin væru ólögleg. Nawalny gat þá boðið sig fram sem kannski var hluti af leikfléttu Putin. Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur Nawalny stuðnings 16-20%. Ef fleiri frambjóðendur fá nálægt 10% yrði kosin önnur umferð. Nawalny hefur bloggað gegn spillingu en ráðandi öfl geta notað alls konar spilltar aðferðir gegn honum. Ef Nawalny fær milljón atkvæði er það mikill persónulegur sigur en í reynd er einn hugaður einstaklingur að berjast gegn spilltu kerfi.

Bloggfærslur 8. september 2013

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband