4.1.2014 | 22:12
Evran verður til 4.1. 1999.
Þetta markaði tímamót. Á dögum Karla Magnúsar á níundu öld var sameiginleg mynt í Evrópu en eftir það varð langt hlé. Það voru 11 ríki ESB sem tóku upp nýju myntina. Íbúafjöldi ríkjanna var 290 milljónir. Markmiðið var að efla hagvöxt og færa ríkin nær hvert öðru. Gengið var skráð 1.17 dollarar og greinilegt að ríkin ellefu ætluðu nýja gjaldmiðlinum stórt hlutverk í alþjóðlegu hagkerfi. Það var svo 1.1. 2002 að seðlar og mynt sáu dagsins ljós og gömlu gjaldmiðlarnir voru teknir úr umferð. Vatikanið og Monako tóku einnig upp evru og auk þess nokkur önnur svæði í Evrópu. Upptaka evrunnar var umdeild. Margir óttuðust að skiptin sjálf yrðu erfið í framkvæmd og dýr. Sumir töldu hættu á verðbólgu. Grikkland tók upp evru 2001 eftir að umsókn hafði verið hafnað einu sinni. Evran var sett á stofn á grundvelli Maastricht samningsins frá árinu 1992.
4.1.2014 | 17:06
Hvernig á að ræna hraðbanka?
Stundum gerast undarlegir hlutir. Hraðbankar tæmast. Það hefur ekki verið brotist inní þá og greiðsluyfirlit sýna engar færslur. Bankinn hefur nú nákvæmt eftirlit með nokkrum hraðbönkum og loks tekst að góma menn sem taka peninga úr bönkunum. Nú kemur í ljós að notaður hefur verið USB lykill með afar háþróuðu forriti og jafnvel fyrir sérfræðinga í öryggismálum var hér eitthvað nýtt á ferðinni. Sérfræðingar hjá bandaríska fyrirtækinu CrowdStrike kynntu niðurstöður sínar á ráðstefnu í Hamborg. Hvað gerðu hraðbankaræningjarnir? Þeir boruðu gat á hraðbankann og stungu UBS lyklinum í tölvu bankans. Tölvan notaði Windows xp. Til þess að geta gert þetta urðu hraðbankaræningjarnir að hafa nákvæmar upplýsingar um innri gerð bankans. Þeir geta nú komið fyrir nýju forriti sem er í gangi samhliða gamla forritinu. Þeir verða nú að hylja gatið sem var borað svo ekkert sjáist. Nú hvernig er bankinn rændur? Slegin er tala sem vour 12 tölustafir. Þá birtist nýtt skjáborð. Ræninginn hefur nú samband símleiðis( það sést á myndavélum) og fær uppgefna tölu til að slá inn. Nú birtist nýtt borð og þá er hægt að tæma allan hraðbankann hólf fyrir hólf. Síða þarf að eyða heimildum um það sem fram fór. Sögu allra færslna er eytt. Hraðbankarnir voru vandlega valdir. Skráninganúmer eða upprunanúmer voru þekkt. CrowdStrike vildi ekki gefa upp um hvaða banka var að ræða. Myndir sem notaðar voru á ráðstefnunni bentu til að bankinn væri í Braselíu en líklega voru þær til að villa um fyrir ráðstefnugestum (spiegel).
Það væri nú að bera í bakkafullan lækinn að minnast á Brynjar, lögmann, Níelsson enda ætla ég ekki að gera það. Menntun og þekking lætur undan síga fyrir trú. Fólk á hægri væng stjórnmálanna færist inní heimsmynd liðins tíma. 33% bandaríkjamanna telja að menn hafi verið skapaðir og séu óbreyttir frá því. 66% telja að mannkyn hafi orðið til í þróun. 64% hvítra mótmælenda trúa á sköpun og óbreytileika. 48% repúblíkana telja að menn hafi verið skapaðir og síðan óbreyttir. 67% demókrata telja að menn hafi orðið til í þróun. Á undanförnum árum hefur sköpunarkenningu Gamla textamentisins greinilega vaxið fiskur um hrygg. Það hefur hið virta PEW rannsóknarsetur nú staðfest. USA sker sig úr. Trúarleg heimsmynd á miklu fylgi að fagna. 33% trúa á sköpun Guðs; guð skapaði manninn og þannig er hann í dag. Munurinn á stóru flokkunum hvað þetta varðar er að vaxa. 57% eru almennt hlyntir hugmyndum um sköpun. Guð skapaði manninn eða hann kom þróuninni af stað í þeim tilgangi að skapa manninn. Hlutfall þeirra sem trúa gamla og nýja Textamentinu bókstaflega, yfirboðsskilningur á orðinu, fer vaxandi en er hærra hjá hvítum en svörtum. Menntun skiptir miklu, 72% þeirra sem lokið hafa háskólamenntun aðhyllast heimsmynd náttúruvísinda. En pólitískar línur eru afar skýrar hjá repúblikönum. Þeir halda á víðar lendur trúarinnar. Margir forystumenn þeirra eins og t.d Rick Sanatorum hafa talað opinskátt gegn vísindalegri þekkingu. Í flokknum takast menn á. Eftir tapaðar kosningar 2012 sagði Bobby Jindal, ríkisstjóri í Louisinana : við verðum að hætta að vera heimski flokkurinn. (spiegel).
4.1.2014 | 08:39
Vændi í Kína.
Li Zhengguo er 39 ára, einhleyp og tveggja barna móðir. Hún á heima í Peking og er vændiskona. því fylgir mikil áhætta: ofbeldisfullir viðskiptavinir, hiv,umtal nágranna og lögreglan. Síðast þegar lögreglan tók hana fasta var hún á dóms og réttarhalda send í vinnubúðir þar sem hún var í hálft ár. Þar bjó hún til skrautblóm úr pappír og las reglugerðir sem banna vændi. Að hálfu ári loknu varð hún að borga fyrir dvöl sína í vinnubúðunum sem svarar 60 dollurum á á mánuði. Á síðasta ári lýstu stjórnvöld því yfir að þau ætluðu að afnema endurmenntun með vinnu en á þessu eru tvær undantekningar: annars vegar fíkniefnaneytendur og hins vegar vændiskonur og viðskiptavinir þeirra. Í vinnubúðum geta vændiskonur verið í allt að tvö ár. Þær vinna 7 daga vikunnar og fá engin laun.Fáir viðskiptavinir eru settir í slíkar vinnubúðir. Ætlað er að á hverju ári séu 18 til 28 þúsund konur sendar í slíkar búðir. Vinnubúðirnar eru í reynd fyrirtæki sem framleiðir mikið af vörum sem sáralitlum tilkostnaði. Hægt er að múta yfirmönnum og losna ef nægir peningar eru til. Þeir sem vilja heimsækja konurnar verða að borga aðgangseyri. Við stofnun Alþýðulýðveldisins var því lýst yfir að afnema ætti allt vændi og endurhæfa vændiskonur. Maó og aðrir kommúnistar litu á vændi sem kapítaliska kúgun. Lögð var mikil áhersla á þessa stefnu og vændi nánast útrýmt. Í upphafi 9unda áratugsins hefst markaðsvæðing í Kína og þá breytast hlutirnir hratt aftur. Í skýrslu SÞ var talið að allt að 6 milljónir kvenna stunduðu vændi. Mánaðarlaun Li s fyrir vændi eru eitt þúsund dollarar. Það er meira en þreföld mánaðarlaun ófaglærðs fólks. Li kann ekki að lesa. Ég er ómenntuð sveitastelpa og hef enga hæfileika segir hún. Li vann á svínabúgarði og hún hlær stundum dillandi hlátri. Hún treystir á fasta kúnna, aðallega gifta menn og einmana farandverkamenn. Ekki eru allir kúnnar heiðarlegir; sumir borga ekki og aðrir þykjast vera lögreglumenn. Sumir fá æðisköst ef Li gerir ekki það sem þeir biðja um. Ég hringi ekki í lögregluna segir Li. Húnn tekur alltaf afstöðu með kúnnanum. (The New York Times).
Bloggfærslur 4. janúar 2014
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar