Nám er vinna og mikil vinna auk aga. Þetta eru ríkjandi viðhorf í kínversku skólakerfi. En það er hægt að leita annarra leiða og skoða aðra möguleika. Í Chunzhigu skólanum í Peking skjálfa nemendur ekki af ótta og kvíða. Kennarinn reiðist ekki og faðirinn skammast sín ekki ef hlutirnir ganga ekki alveg eins og þeir ættu. Allt þetta er ekki dæmigert fyrir Kínverja. Eitt ár fyrir nema kostar 4000 evrur. Einn faðir segir að skólaganga sonar hans eigi að vera skemmtilegri og fegurri en hans var. Kennarinn heitir Yu og hann heyrði fyrst af Waldorfskólum í Þýskalandi meðan hann var í háskólanámi. Yu fór seinna til New York og þar lærði hann kennslufræði Rudolf Steiner. 2008 kom hann aftur til Kína og nú eru 120 leikskólar og 20 skólar starfandi í Kína sem byggja á fræðum Rudolf Steiner. Yu segir að skólar í Kína séu betri en af er látið. PISA rannsóknir hafa staðfest það. En skólakerfið í Kína glímir við margvísleg vandamál. það er afar mikið af einbirnum í skólanum og það getur meir að segja verið erfitt að rétta hvert öðru hendina. Samkeppnin er hörð og kröfur foreldra miklar.Yu skipuleggur námið þannig að fyrstu árin er námsefnið léttara en í hefðbundnum skólum. Efir skólagönguna eru okkar nemendur jafn góðir og hinur segir Yu. Stangt til tekið eru Waldorfskólarnir dálítið kraftavert. Kínverska ríkisvaldið vill fylgjast með öllu. Með hverri hreyfingu, öllum ferðum í lestum og flugvélum, öllu sem gerist í fjölmiðlum...En í skólakerfinu er allt í lagi að gera tilraunir og á fleiri sviðum hafa verið gerðar tilraunir. (spiegel, www.rudolfsteinerweb.com)
5.1.2014 | 10:44
Utanríkisráðherra Austurríkis er ekki líkur Gunnari Braga....
Hann heitir Sebastian Kurz og er 27 ára gamall. Hann er yngsti utanríkisráðherra Evrópu. Hann hefur ekki lokið námi sínu og hefur enga reynslu af embættisstörfum. Fyrir ungliðahreyfingu flokks síns ÖVP gerði hann kosningamyndband. Svartur gerir Vín graða segir hann í upptökuvélina. Svartur litur er flokkslitur ÖVP. Nú birtist Hummer jeppi og á vélarhlífinni stendur ljóshærð stúlka í svörtu bikini. Upptökuvélin súmerar á brjóst ljóshærðu stúlkunnar en hún og aðrar stúlkur byrja að dansa. Myndbandinu líkur það því að Kurt birtist og dreifir smokkum. Nokkrum mánuðum eftir gerð myndbandsins var Kurt skipaður ráðuneytisstjóri. Ekki voru allir sáttir. Fari það í rassgat skrifaði eitt af blöðum landsins. Og nú er Kurt utanríkisráðherra og í ráðuneyti hans eru 1200 starfsmenn. Laun hans 16 þúsund evrur á mánuði. Hann hefur embættisbifreið og marga bílstjóra. Erfið viðfangsefni eru á skrifborðinu ; NSA, hernaðaríhlutin í Sýrlandi og ESB aðild Tyrklands. Ban Ki Mon hringdi nýlega og einnig varnarmálaráðherra Ísrael. Carl Bildt sendi hamingjuóskir á Twitter. Kurt svaraði um hæl : "would be a pleasure to meet you soon". Ég er raunsær segir Kurt; Austurríki er ekki stórveldi. En Kurt á eftir að spjara sig. Hann hefur góða ráðgjafa og hann ætlar að ljúka námi sínu í lögfræði. Kannski gerist það hér á Íslandi eftir næstu kosningar að framagjarnir karlar og framagjarnar konur úr ungliðahreyfingum flokkanna fái tækifæri og verði skipaðir ráðherrar?
Sjálfstrausti hefur þjóðin náð með því að legga áherslu á hefðbundnar og nýjar greinar s.s. sjávarútveg, endurnýjanlega orku og ferðaþjónustu. Að ógleymum prjónaskap. Íslendingar voru sjómenn og bændur-ritar þýski blaðamaðurinn-áður en þeir ákváðu að gera land sitt að spilavíti(casino) fyrir alþjóðlegt fjármagn. Eftir ævintýrin í spilavítinu sækja Íslendingar nú sjóinn að nýju. Líklega hefur það aldrei gerst í mannkynssögunni á svo skömmum tíma að svo miklum fjármunum hafi verið safnað saman en síðan glatast eða horfið aftur á jafn skömmum tíma. Þetta gerðist í aðdraganda hrunsins og í hruninu. En nú eru ýmsir hagvísar jákvæðir. Hvernig stendur á því ? spyr blaðamaður Spiegel Ásgeir Jónsson hagfræðing. Við upphaf íslenska undursins (líklega á Ásgeir við "góðærið"; innskot bloggara)var Þýskaland. Fram til dagsins í dag eru þýskir bankar stærstu lánveitendur Íslands. Árið 2010 áttu þýskir kröfur uppá 200 milljarða evra í íslensk fjármálafyrirtæki. Þjóðverjar virðast vera veikir fyrir Íslendingum. Wagner notaði fornnorrænar bókmenntir þegar hann samdi óperur sínar.Þýskir ferðamenn sem koma til Íslands er nú um 70 þúsund.En hvernig átti að bregðast við bankahruninu? Er þetta rétt lýsing á íslensku leiðinni : bankarnir fara í gjaldþrot, gengið fellur, fjármagnshöft og erlendar skuldir ekki greiddar. Af hverju ætti að borga allar skuldir? Seiðandi söngur hárra vaxta tældi erlenda fjárfesta til Íslands. Háir vextir og mikil áhætta; vogun vinnur og vogun tapar. En nú eru breyttir tímar. Gamlar dyggðir verða nýjar; vinnusemi þjóðarinnar, þjóðin er ung og aldursamsetning heppileg, vindur, vatnsorka, jarðvarmi og fiskistofnarnir. Þýski blaðamaðurinn talar næst við Valla Höskuldsson, fyrrum bankamann en núverandi sjómann. Hann er vélaverkfræðingur að mennt. Hann var rápgjafi í banka og lánaði há lán og fékk bónusgreiðslur. Þetta voru blekkingar og ég var blekktur segir hann núna. Skúli Mogensen er fjárfestirinn. Hann er einn að ríkustu mönnum Íslandsins. Hann er einngi álitinn ."einer der coolsten Isländer". Skúli segir að það séu 3 stór svið : sjávarútvegur sem er mikið skipulagður , ferðaþjónusta sem vex með ógnarhraða og orka, Ísland er land umhverfisvænnar orku. Það að glíma við afleiðingar hrunsins er líklega dýrasta hópmeðferð sögunnar. Eitt af því sem hægt er að gera og er mjög róaandi og gott er að prjóna. Það gerir Ragnheiður Eiríksdóttir. Prjónaskapur hefur aukist mikið eftir hrrun. Prjónavörur eru fallegar og þær hugga og róa mann segir Ragnheiður. Í lok greinar der Spiegel er rætt stuttlega við fjármálaráðherra Íslands.
Bloggfærslur 5. janúar 2014
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar