13.8.2013 | 14:21
Ný stefna seðlabanka eða blindur hundur leiðir blindan fjárfesti.
Leiðsögn fram á við er að verða lykilorð hjá helstu seðlabönkum í USA og Evrópu. Nú á að gefa upp vaxtastig til lengri tíma og miða við breytingar á öðrum hagstærðum og þá helst atvinnuleysi. Englandsbanki bættist nýlega í hópinn. Mark Carney sem áður var bankastjóri Seðlabanka Kanada kom hinni nýju stefnu á . Bankinn ætlar að halda stýrivöxtum lágum þar til atvinnuleysið er komið niður fyrir 7% en það er nú 7.8%. Þetta er þó háð verðbólgustigi sem er nú 2.5% í Bretlandi. Ef verðbólga hækkar verulega yrði að hækka stýrivexti. Vandinn við þetta er að nú leiðir blindur hundur blindan fjárfesti. Hvorugur hefur hugmynd um hver verðbólga, hagvöxtur og atvinnuleysi verður á næstu árum. En nú er hagnaðarhlutfall lágt, fjárfestingar litlar og neysla í lægð. Ódýrir peningar verða því ekki til að skapa ny störf. Hlutabréfavísitalan tekur að stíga og verð á húsnæði hækkar. Vísitala neysluverðs hefur alltaf verið hærri í Bretlandi en á meginlandi Evrópu. Verð á fasteignum í London hefur hækkað um 8.1% á einu ári. Á sama tíma hækkuðu laun um 1%. Raunlaun hafa lækkað um 5.5% í Bretlandi síðan 2010. Meiri lækkun er aðeins í Grikklandi, Hollandi og Portúgal. Hver eru nú viðbrögð stjórnvalda í Bretlandi? Hún fylgir stefnu sem hækkar fasteignaverð og leiðir til meiri hagnaðar þeirra sem eiga, kaupa og selja hlutabréf. De te Fabula narratur. (Stuðst við blogg M Roberts).
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar