Eru skólatöskur og heimanám tímaskekkja?

Í Akureyrivikublað.is er viðtal við Ágúst Ólason fyrrverandi skólastjóra. Hann segir skólatöskur tímaskekkju og virðist eiga við að heimanám sé tímaskekkja. Nú geta skólatöskur verið þungar og dýrar og stundum mikilvægt að eiga vandaða skólatösku en það virðist ekki kjarni málsins. Það er betra fyrir börnin að þau búi sig undir nám næsta dags, lesi, reikni og geri verkefni að lokinni kennslu. Þegar börnin koma heim eru þau búin í sinnu vinnu. En hver eru rökin? Svo merkilegt er að þau eru engin og í athugasemdum koma þau heldur ekki fram. Það er einfaldlega fullyrt að um óþarfa hefð og tímaskekkju sé að ræða. Nú mál það vel vera að þetta sé rétt,  en hver er skýringin? Hafa foreldrar vegna vinnu eða annars engan tíma lengur til að aðstoða börn við heimanám? Með heimanámi geta foreldrar fylgst náið með námsframvindu barnsins. Er það ekki lengur mikilvægt? Er stuðningur og hvatning ekki lengur mikilvæg? Grunnskólar gegna margvislegu hlutverki ; þeir miðla þekkingu og fræðslu, þeir efla færni og þroska á mörgum sviðum og börnin eru í öruggri gæslu ákveðinn hluta dagsins. Eitt sinn töluðu félagsfræðingar um verkefnaþurrð kjarnafjölskyldu. Leikskólar, grunnskolar, íþróttafélög, tómstundastarf, netmiðlar og tölvuleikir hafa tekið yfir mikið af hlutverkum sem fjölskyldan sinnti áður á heimilum. Sumt af þessu er eðlileg þróun og æskileg en annað ekki. Engin eiginleg fjölskyldustefna er til hér á landi. Fjölskyldan er afgangsstærð. Það ætti að vekja til umhugsunar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband