18.8.2013 | 09:31
Flokksþing Framsóknar um Ríkisútvarpið.
Fróðlegt er að lesa það sem stendur um Ríkisútvarpið í ályktun 32. flokksþings Framsóknarflokkssins. þar segir : "Fjölmiðlar eru mikilvæg upplýsingaveita almennings í lýðræðislegu samfélagi. Auka þarf gagnsæi um útbreidda fjölmiðla þannig að eignarhald sé skýrt svo og til að koma í veg fyrir samþjöppun. Ríkisútvarpið gegnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi með aðhaldi og hlutlægri umfjöllun um íslenskt samfélag.Á Rúv hvílir rík samfélagsleg og lýðræðisleg skylda.og því ber að þjóna öllu landinu. Útvarpsgjaldið verður því að renna óskipt til Rúv." Flokksþingið var haldið 8.-10 . feb. á þessu ári. Æðsta stofnun flokksins hefur lagt línurnar. Hingað verða einstakir forystumenn að sækja réttlætingu og rök fyrir fullyrðingum sínum í pólitísku dægurþrasi. Tillögur á breytingar áRíkisútvarpinu verða að falla að stefnu sem æðsta stofnun flokksins hefur mótað. Annað væri svik við fulltrúa á flokksþingi, almenna flokksmenn og kjósendur flokksins.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar