18.8.2013 | 10:22
Vietnam ; engar fréttir, góðar fréttir.
Nú í langan tíma hafa fremur fáar fréttir ratað í íslenska fjölmiðla. Vietnam stríðinu lauk 1975(hófst 1954) þegar bandarískur her yfirgaf stríðshráð landið. Vietnam var nýlenda Frakka(1887-1940) og háði þjóðfrelsisstríð gegn frönskum herjum. Franskir og bandarískir fjölmiðlar fylgdust náið með þessum átökum og þau höfðu afgerandi áhrif á innanlandsstjórnmál landanna. En nú hafa tæp 40 ár liðið. 2012 var áætlað að íbúafjöldi Vietnam væri rúmar 90 milljónir. Verg landsframleiðsla er áætluð 320677 milljarðar dollarar 2012. Hagkerfi Vietnam verður númer 17. í heiminum ef spádómar Goldman Sachs ganga eftir. Á sjötta flokksþingi Kommúnistaflokksins árið 1986 varð mikilvæg stefnubreyting í efnahagsmálum. Sósíalísku markaðskerfi var komið á með einkafyrirtækjum í iðnaði, verslun og landbúnaði. Vietnam er nú þriðji stærsti olíuframleiðandi í Suðaustur Asíu. Í Hanoi búa nú sex og hálf milljón manna. Í Ho Chi Minh borg búa 7.4 milljónir. Barnadauði er 12 á hver 1000 lifandi fædd börn. Lífslíkur kvenna eru 76 ár en 72 ár fyrir karla.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar