18.8.2013 | 14:32
Aumt yfirklór Utanríkisráðherra.
Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur upplýst að ríkisstjórnarflokkarnir hafi ekki rætt um einstök atriði Evrópumála í stjórnarmyndunarviðræðum. Þeir hafa þar af leiðandi ekki rætt hvernig málið verði unnið í einstökum atriðum og lykilatriði eins og þjóðaratkvæðagreiðsla virðist liggja í lausu lofti. Styrmir Gunnarson þakkar BB fyrir hreinskilnina en átelur hann fyrir að skilja ekki mikilvægi Evrópumála. Málið varði stöðu Íslands í samstarfi þjóðanna. Misvísandi og undarlegar yfirlýsingar forsætis-og utanríkisráðherra hafa vakið furðu. Sumir hafa áhyggjur af orðspori landsins út á við. Utanríkisráðherra og fyrrum ritstjóri hins ágæta héraðsfréttablað Fylkis hefur nú ritað grein á bloggsíðu síðan. þar upplýsir hann að aðildarviðræður við ESB hafi ekki verið eitt af stóru málunum í kosningabaráttunni(!). Síðan koma sjálfsögð sanningi eins og að stjórnarflokkarnir hafi lýðræðislegt umboð til að framfylgja stefnu sinni(!). Hvað annað? Næst fjallar ráðherran um ipa styrkina og leggur á að áherslu að þeir megi ekki vera drifkrafturinn fyrir aðildarumsókn. (!) Já, skarplega athugað. Menn hafa hingað til verið sammála um að hagsmunir þjóðarinnar í bráð og lengd eigi að ráða för. Nú vitnar ráðherran í könnun sem sýnir að meirihluti landsmanna er á móti aðild að esb. Mikið rétt en sömu kannanir sýna að meirihluti landsmanna vill ljúka viðræðum og greiða atkvæði um samning. Þetta hafa Norðmenn gert í tvígang. Lokið samningsferli og fullgert samning (skoðað í pakkann !) og hafnað samningi. Hafa Íslendingar ekki sama lýðræðislega rétt og Norðmenn?
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar