19.8.2013 | 08:49
Getur Þýskaland bjargað evrusvæðinu?
K A Konrad sem er aðalráðgjafi Schauble fjármálaráðherra tjáir sig um málið í blaðinu Die Welt. Tillaga hans er sú að Þýskaland yfirgefi evrusvæðið ef til mjög djúprar kreppu kæmi. Útganga Þýskalands myndi þýða endalok sameiginlerar myntar í núverandi mynd. Margir hagfræðingar halda því fram að útganga væri versti möguleiki fyrir þýskt hagkerfi en Konrad er annarar skoðunar. Konrad er þeirrar skoðunar að Grikkir eigi nægar eignir til að greiða sínar skuldir en vilji ekki eða geti ekki gengið á þessar eignir. Grikkland er eins og botlaus tunna og stöðugar greiðslur koma hagvexti ekki af stað. Hins vegar myndu þeir sökkva í skuldum ef þeir gengju úr evrusamstarfinu. Þýskaland getur af pólitískum ástæðum ekki yfirgefið evrusvæðið. Önnur lönd yrðu að þvinga Þýskaland og önnur Norður-Evrópulönd til að gera það. Slíkt myndi gefa löndum Suður-Evrópu tækifæri til að fella gengi evrunnar sem myndi bæta samkeppnisstöðu landanna. Við slíkar aðstæður er mikil hækkun þýska marksins(nýja!) líkleg og bankar yrðu að kaupa mikið af erlendum gjaldeyri. Með risastóran gjaldeyrisvarasjóð væri Þýskaland í svipaðri stöðu og Kína er nú. Þýskaland getur ekki bjargað evrunni. Eignamyndun þýskra heimila er lítil og á síðustu 15 árum hafa þýsk heimili dregist aftur úr. Ef evrusvæðinu er haldið gangandi með svipuðum hætti og nú verður svæðið eins og Ítalía er núna. Skörp skil á milli ríka hlutans í norðri og fátæka í suðri. Fjárstraumur og stuðningur frá norðri til suðurs. Evrópa stendur á tímamótum en sterkt pólitískt og efnahagslegt samband virðist fjarlægur möguleiki fyrir ESB.
(www.welt.de)
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar