22.8.2013 | 21:18
Utanríkisstefna Gunnars Braga.
Utanríkisráðherra birtir bréf á heimasíðu ráðuneytisins. Þar byggir hann á nafnlausu lögfræðiáliti starfsmanna ráðuneytisins. Niðurstaða álitsins er sú að þingsályktun sé ekki bindandi nema þær byggist á sérstökum lögum eða stjórnarskrá. Aðrar bindi stjórnvöld ekki nema að svo miklu leyti sem af þingræðisvenju leiði. Og nú tekur ráðherrann rökfræðilegt og pólitískt heljarstökk. Að þessu gefnu mun ráðherra íhuga að leysa samninganefnd og samningahópa frá störfum. Nú er það öllum ljóst að þetta jafngildir slit viðræðna. Sami ráðherra hefur marglýst þeirri stefnu sinni að hlé ætti að gera á viðræðum. Þær stöðvaðar og skipaður yrði sérfræðingahópur til að gera útttekt á viðræðum og einnig á þróun ESB. Á þeim grunni yrði síðan umræða á Alþingi um málið og afstaða þingsins mótuð. Á augabragði virðist allt þetta gleymt eða horfið í tómarúmið í huga ráðherrans. Allt tal um þjóðaratkvæðagreiðslu er einnig gleymt. Ályktanir á flokksþingi Framsóknar eru löngu gleymdar. Þingsályktanir Alþingis hafa verið gengisfelldar með furðulegum hætti. Þær eru ekki lengur stefnumótandi pólitískar viljayfirlýsingar heldur minnisblöð sem fara í ruslafötuna. Hvað varð um virðingu og reisn Alþingis? Af hverju er ekki ný þingsályktun samþykkt á Alþingi sem nemur hina fyrri úr gildi? Samband Íslands og ESB er ekki smámál sem hægt er að afgreiða með lagatækni og lögfræðiáliti.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar