Þagnarskylda kaþólskra presta og tilkynningarskylda.

Kaþólski biskupinn yfir Íslandi hefur sent frá sér tilskipun um viðmiðunarreglur varðandi kynferislega misnotkun barna. Þar er ítrekað að alger þagnarskylda gildi um það sem sagt er við skriftir. Innsigli skriftanna er órjúfanlegt skrifar biskup. Nú er öllum ljóst mikilvægi skrifta í sálusorg og sálgæslu.  En eitt eru landslög og annað tilskipanir biskups. Í grein í mbl.is í dag er því haldið fram að tilskipun kaþólsku kirkjunnar sé andstæð barnaverndarlögum og vitnað sérstaklega í 16. og 17. grein laganna. Í 17. grein segir að lögin standi framar lögum eða siðareglnum sem varða ákveðnar starfsstéttir. þar eru nefndar stéttir eins og leikskólastjórar, læknar, hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar. Nú þekkir bloggari ekki hvort tilkynningar frá slíkum starfsstéttum hafi verið rannsakaðar. Athygli vekur að lögfræðingar eru ekki taldir upp í 17. grein. Ef barnaníðingur hefur játað brot sitt fyrir verjanda sínum reynir lögmaðurinn eftir sem áður að halda fram sakleysi mannsins? Ef svo er ná barnaverndarlög ekki til þagnarskyldu lögmanna?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband