Utangarðsfólk í Reykjavík.

Árið 2009 var gerð rannsókn á utangarðsfólki. Þá kom í ljós að stór hluti hópsins átti við áfengis- og vímuefnavanda að glíma. Félagsleg tengsl einstaklinga voru yfirleitt slæm. Um helmingur átti við geðræn veikindi að stríða og 70% voru með líkamlegan sjúkdóm. Meðalaldur var 41 ár og 25% hópsins voru konur. 37% hópsins luku eingöngu grunnskólaprófi og 10 % luku ekki grunnskólanámi. Rúmlega fjórðungur hópsins hafði lokið iðnnámi eða starfstengdu námi. 55% lifðu af örorkubótum og 25% til viðbótar fengu fjárhagsaðstoð frá hinu opinbera. Um helmingur hópsins hafði ekkert samband við upprunafjölskyldu og 15% til viðbótar sögðu sambandið vera lélegt. Samband kvennanna í hópnum við sína upprunafjölskyldu virtist vera betra en karlanna. Helmingur hópsins átti barn eða börn. Tæplega helmingur hafði verið greindur með einn eða fleiri geðsjúkdóm og flestir með kvíða og geðhvarfasýki. 73% höfðu einhvern tíma hugleitt sjálfsvíg og 32% gert tilraun til sjálfsvígs.  85% notuðu áfengi að staðaldri. Sumarið 2009 voru 100 einstaklingar sem töldust heimilislausir eða utangarðs samkvæmt skilgreiningu. 5 voru af erlendum uppruna.  Rúm 60% hópsins höfðu verið heimilislaus í tvö ár eða meira. Í mars síðastliðnum voru heimilislausir 179 samkvæmt úttekt Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband