Forsætisráðherra á Aljazeera; athugasemdir útlendinga.

Á dögunum var forsætisráðherra í viðtali hjá hinni kunnu fréttastofu Aljazeera. Nú geri ég ráð fyrir að flestir viti nokkurn veginn hvað hann hefur fram að færa enda er það margendurtekið hjá öllum útvarps-og sjónvarpsstöðvum hér á landi. Athyglisvert eru hugmyndir útlendinga um Ísland eins og þær birtast í athugasemdakerfinu. Amb bendir að að hagvöxtur sé á Íslandi, lítið atvinnuleysi og bankar traustir. Allister er þeirrar skoðunar að bankamenn hafi verið settir í fangelsi, skuldir greiddar niður og atvinnulífið hafi náð sér á strik. Hann er einnig þeirrar skoðunar að Ísland hafi hafnað niðurskurði, þjóðnýtt bankana og nú sé hagvöxtur 2.4%. Conlon er þeirrar skoðunar að hagvöxtur hafi aukist eftir að hagöxtur bankamenn voru settir í fangelsi. Parkins vill bera saman Kýpur og Ísland. Á Kýpur hafi hluti af sparifé almennings verið notaður til að leysa vanda bankanna en á Íslandi hafi bankar orðið gjaldþrota, bankastjórar í fangelsi , innistæður verið tryggðar og byrjað að greiða úr skuldavanda einstaklinga. Ad er þeirrar skoðunar að Ísland hafi eingöngu frestað vandamálunum. Mustafa telur að gangi Ísland í ESB verði bankarnir of stórir til að geta fallið. Þetta eru fáein dæmi og eins og sést greinilega er mismikil þekking að baki skoðunum manna. Merkilegt er hversu margir telja að bankamenn á Íslandi séu í fangelsi. Það leiðir hugann að því að al Thanimálið verður nú fljótlega tekið fyrir í dómsölum.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband