4.9.2013 | 10:21
Af hverju er erfitt að losna við kennitöluflakk?
Kennitöluflakk er aðferð til að losa sig við skuldir. Skuldir eru skildar eftir í félagi með takmarkaða ábyrgð en eignir fluttar í nýtt félag. Ef allt gengur upp þýðir þetta einskonar afskrift skulda. Allir kröfuhafar tapa. Fyrirtæki, bankar, lífeyrissjóðir, ríkissjóður og launafólk. Iðnaðarráðherra hyggst grípa til aðgerða gegn kennitöluflakki og boðað er nýtt frumvarp um skil ársreikninga. Gott og blessað en þetta hefur allt heyrst áður. Í fréttum Ríkisútvarpsins frá því í desember síðastliðnum segir að á Alþingi liggi fram frumvarp um breytingar á lögum um ársreikninga. Þá er og verið að vinna að lögum til að verjast kennitöluflakki. Síðan þá eru liðnir 10 mánuðir. Árið 2005 var kennitöluflakk einnig til umræðu. Þá var gerð könnun sem leiddi í ljós að stjórnendur 600 fyrirtækja töldu kennitöluflakk valda miklum skaða og áætlað tap vegna þess væri 1.5 milljarður. 2004 höfðu Samtök Iðnaðarins farið í herferð gegn kennitöluflakki. Í yfirlýsingum voru þau mjög harðorð í garð fjármálastofnana og töldu að í sumum tilvikum tækju þessar stofnanir þátt í að skipuleggja "vel undirbúið gjaldþrot". Auðljóslega var þar verið að segja að fjármálastofnanir gætu haft hag af kennitöluflakki. Ef fjármálastarfsemi á að vera á faglegum viðskiptagrundvelli verður að sjálfsögðu að skoða alla viðskiptasögu aðila. Þetta gildir einnig um útboð hjá hinu opinbera. Ef stöðva á kennitöluflakkara verður að koma fram kæra. Eðlilega hefur fjöldi slíkra mála komið á borð sérstaks saksóknara. Í desember síðastliðnum höfðu rúmlega 200 gjaldþrot verið kærð til embættisins. Í árslok 2012 voru skráð 31000 fyrirtæki með takmarkaða ábyrgð. Þá var vitað um 142 einstaklinga sem höfðu verið í forsvari fyrir 5 eða fleiri félög og farið í þrot. Dæmi var um einn mann sem stofnað hafði 17(!) fyrirtæki og skuldaði tugi(!) milljóna í opinber gjöld.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar