Viðhorf til barnaníðinga.

Barnagirnd er þekkt í öllum samfélögum og nánast allsstaðar mætir hún mikilli andúð, hatri og fyrirlitningu. Dæmdir barnaníðingar mæta margvíslegri andstöðu og þeim er sýnd harka og kuldi í samskiptum. Þeir mæta margvíslegum og hörðum fordómum. Barnaníðingar hljóta fordæmingu samfélagsins allt frá því upp kemst um málið og löngu eftir að þeir hafa tekið út sinn dóm. Í barnagirnd felst það að hafa stöðugan kynferðislegan áhuga á börnum sem ekki hafa náð kynþroska. Skýringar á barnagirnd eru ýmis konar. Tilfinningaleg samsvörun getur átt sér stað milli fullorðins og barns sem og örvun. Viðkomandi getur verið ófær um að mynda tilfinningasamband við fullorðna manneskju. Einnig er hugsanlegt að þeir sem girnast börn séu hömlulausari en aðrir. Innra og ytra félagslegt taumhald ætti að koma í veg fyrir kynferðislegt samband fullorðins manns og barns. Kynferðisbrot gegn börnum er lítið hlutfall allra brota hér á landi. Árið 2009 var heildarfjöldi  skráðra brota 74764. Kynferðisbrot voru 316 og brot gegn yngri en 15 ára 96. Þunglyndi og kvíði eru algeng hjá barnaníðingum. Umfjöllun fjölmiðla gefur oft brenglaða mynd af barnaníðingum. Í nærri helming tilvika eru náin tengsl milli brotaþola og gerenda. Barnaníðingar hafa lágt sjálfsmat og þá skortir samkennd. Þeir gera sér bjagaðar hugmyndir um eigin hegðun. Með dómi og refsingu verður barnaníðingur fyrir neikvæðri stimplun samfélagsins sem getur fest hann enn frekar í sama hegðunarmynstri. Margvísleg meðferðarúrræði eru til fyrir barnaníðinga bæði sálfræðileg og læknisfræðileg.Dæmdir barnaníðingar hafa gjarnan  átt erfiða æsku. Hátt hlutfall hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Flestir lifa hefðbundnu fjölskyldulífi áður en ákæra kemur fram. Við ákæru og dóm rofna tengsl við fjölskyldu. Í fangelsisvist verða þeir fyrir ofbeldi í einni eða annarri mynd. Þegar úr fangelsinu er komið eru þeir stimplaðir menn sem eiga í margvíslegum erfiðleikum með að lifa eðlilegu lífi. Geðheilsa flestra er slæm. Eftir fangelsisvist reyna flestir að flytja á nýjan stað. Við þurfum öll að læra. Samfélagið allt þarf að læra hvernig á að taka við barnaníðingum þegar þeir hafa tekið út sína rrefsingu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband