7.9.2013 | 19:03
Ráðstöfunartekjur og kaupmáttur.
Árið 2010 var kaupmáttur tímakaups hér á landi um 82% af meðaltali ESB ríkjanna. Á sama tíma var þjóðarframleiðsla á mann fyrir ofan meðaltal. En vinnutími er langur hér og atvinnuþátttaka mikil. Gildir það jafnt um karla og konur. Mikið vinnuálag getur verið streituvaldur fyrir fjölskylduna. Framleiðni er almennt lítil hér og það er stórt vandamál. Auknig á framleiðni felur margt í sér ; menntun, vinnuskipulag, stjórnun, arðsamar fjárfestingar og svo framvegis. Það er mikilvægt að laun á Íslandi séu samkeppnishæf. Vinnumarkaður er alþjóðlegur og vinnuaflið leitar þangað sem bestu kjörin er að fá. Hið eiginlega byggðavendamál snertir ekki lendur landsbyggð og höfuðborgarsvæði heldur Ísland og útlönd. Það er reynsla fjölmargra Íslendinga sem flust hafa til Noregs á undanförnum árum að þar er kaupmáttur ráðstöfunartekna mun meiri en hér. Vinnutíminn er styttri en hér. Reyndar streyma fólk frá fjölmörgum löndum inná norskan vinnumarkað og eru t.d. Svíar mjög fjölmennir. Krónan er merkileg; niðursveifla merkir lækkandi kaupmátt og hrun krónunnar merkir hrun kaupmáttar. Ef laun væru verðtryggð væri þetta ekki vandamál fyrir launafólk en líklega þeim mun meira vandamál fyrir útflutningsfyrirtæki. Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst að meðaltali um 4.3% á árunum 1994 til 2008. En þá kemur rofið mikla; kaupmátturinn lækkar um 16.4% árið 2009 og um 12.9% 2010. Ef kaupmátturinn var 100 árið 2008 var hann orðinn 73 árið 2010. 2011 varð síðan aukning um 5.1%. Erfitt er að bera saman tölur og ár. Segja má að kaupmátturinn 2007 hafi verið tilbúningur eða hókus pókus. En veruleikinn og staðreyndir eru harðar í horn að taka.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar