8.9.2013 | 14:01
Veiðigjaldið og biðin eftir innistæðulausum loforðum.
Þeir sem kusu ríkisstjórnarflokkana og tryggðu þeim meirihluta á Alþingi bíða. Beðið er eftir stóru skuldaniðurfellingunni sem lofað var. Kannski gerist eitthvað um áramótin. Vitað er að flöt niðurffelling verðtryggðra skulda gagnast fyrst og fremst þeim sem eiga miklar eignir , skulda mikið og hafa háar tekjur. Mikill meirihluti kjósenda stjórnarflokkanna er ekki í þessum hópi. Beðið er eftir tillögum hagræðingarhópsins ("dauðasveitarinnar"). Hópurinn skiptist í tvennt.Annars vegar eru mjög yfirlýsingaglaðir, auðæstir og klaufalegir Framsóknarmenn sem komið hafa sjálfum sér í bobba með vanhugsuðum yfirlýsingum. Hins vegar Sjálfstæðismenn sem ákaflega lítið hafa tjáð sig við fjölmiðla. Eftir að ríkisstjórnin hafði verið mynduð tóku flestir ráðherrana sér langt og verðskuldað sumarfrí. Af sumum fréttist helst í útlöndum. Sem sagt ; engin brýn og brennandi mál sem þurfti að ganga í. Nokkrir stjórnarliðar virðast hafa fengið fréttaflutning Ríkisútvarpsins á heilann. Hafa þeir deilt þessum þjáningum sínum með þjóðinni í formi yfirlýsinga og greinaskrifa. Undanfarið haf mörg stór fyrirtæki í sjávarútvegi greint frá afkomu sinni. Hún virðist afbragðsgóð; mikill hagnaður, eiginfjárstaða sterk og nægt svigrúm til að greiða hluthöfum ríkulegan arð. Núverandi meirihluti lækkaði veiðigjald á útgerðir sem stunda bolfiskveiðar mjög mikið. Engin hagfræðileg rök lágu til þess. Tveir helstu sérfræðingar landsins í auðlindahagfræði hafa marglýst því yfir að stórar útgerðir geti borið mun hærra gjald. Ríkisstjórnin er því að skera niður skatttekjur ríkissjóðs. Með kaldhæðni mætti segja að það sé væntanlega til að geta skorið enn meira niður á útgjaldahlið. Nú hefur fjármálaráðherra komið með flata 1.5% hagræðingarkröfu á öll ráðuneyti. Það er afar undarlegt að ekki skuli forgangsraðað í ljósi aðstæðna.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar