Á ferðaþjónustan framtíð?

Gullgrafarastemming virðist ríkja í ferðaþjónustu. Fjöldi erlendra ferðamanna vex ár frá ári og margir mættir á vettvang til að fá sinn skerf af kökunni. Ekki virðiast allir hafa tilskylin leyfi og réttindi. Neðanjarðarhagkerfið vex. Hluti tekna, t.d vegna leigu á íbúð eða húsi skilar sér aldrei inní þjóðarbúið. Skatteftirlitið er eins og árabátur að stöðva millilandaskip. Langflestir eru strangheiðarlegir og hafa allt sitt á hreinu og skilar öllum sköttum og gjöldum. Greiðir laun samkvæmt samningum og allan launakostnað. Margir sjá aukningu næstu ára fyrir sér í hillingum. 15% aukning á ári út áratuginn merkir að fjöldi ferðamanna verður 2.1 milljón 2020. Tekjur greinarinnar í erlendum gjaldeyri á síðasta ári voru 238 milljarðar. Ef spáin um aukningu gengur eftir mun greinin taka við af sjávarútvegi sem lykilgrein. Öllum er ljóst að ef á að taka sómasamlega á móti þessum fjölda og vernda náttúruperlur landsins í leiðinni verður að koma til samstillt átak margara aðila undir forystu stjórnvalda. Stefnumótun er á þeirra hendi. Mikil þörf er á grunnrannsóknum. Ekki er nóg að byggja hótel vítt um landið þótt það sé gott út af fyrir sig. Það er fróðlegt að skoða tölur um veltu í greininni. Velta hjá bílaleigufyrirtækjum voru tæpir 18 milljarðar á síðasta ári skv. tölum Hagstofunnar. Árið 2008 var veltan rúmir 8 milljarðar. Velta veitingastaða var 36 milljarðar árið 2008 en í fyrra var veltan 48.5 milljarðar. Þessar tölur segja sína sögu. Fjölgun erlendra ferðamanna er mikil en tekjur á hvern ferðamann fara minnkandi. Möguleikar greinarinnar eru góðir en veldur hver á heldur.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband