9.9.2013 | 16:04
Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna.
Á morgun 10. 9. er Alþjóðadagur sjálfsvígsforvarna. Mikill meirihluti þeirra sem fremja sjálfsvíg hafa átt við þunglyndi að stríða en stundum aðrar geðraskanir. Þunglyndi er alvarlegur og algengur sjúkdómur. 15-25% einstaklinga verða þunglyndir einhvern tíma á ævinni. Fyrir samfélagið og einstaklinginn er sjúkdómurinn ákaflega dýr. Á Íslandi eru 12.8 sjálfsvíg á hverja 100 þúsund íbúa að meðaltali. Þetta merki að þrír til fjórir einstaklingar svipta sig lífi í hverjum mánuði. Ákveðnir hópar virðast í meiri hættu en aðrir; ungir karlar og konur í alvarlegum fíkniefnavanda, atvinnulausir, drykkjusjúkir og ungir samkynhneigðir. Á árunum 2001 til 2010 sviptu sig 336 manneskjur lífi. Í klassískum kenningum félagsfræði er sjálfsmorð skýrt út frá tengslum einstaklings og samfélags. Ekki er átt við samfélagið í heild sinni heldur mikilvæga hópa sem einstaklingurinn tilhreyrir. Ef náin tengsl milli einstaklings og þessara hópa rofna skapast tómarúm og einstaklingur finnur fyrir tilfinningu einangrunar og tilgangsleysis. Mjög sterk siðaboð mæla gegn sjálfsvígum og mikil samfélagsleg þöggun er kringum sjálfsvíg. Sjálfsvíg eru endir á flókinni atburðarrás og hvert sjálfsvíg hefur sín sérstöku einkenni. Við siðrofsástand eða siðferðilega upplausn getur tíðni sjálfsvíga hækkað mikið.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar