10.9.2013 | 18:27
Heimsmet sett á Alþingi.
Í ræðu sinni á Alþingi í dag tilkynnti forsætisráðherra að ríkisstjórnin myndi setja heimsmet á næstu mánuðum. Í undirbúningi eru róttækustu aðgerða stjórnvalda sem nokkurn tíma hafa verið framkvæmdar í veröldinni í þágu skuldsettra heimila. Þannig hljómuðu orð forsætisráðherra. Hér er greinilega stjórnmálamaður sem kann að hafa áhrif á væntingar almennings. Sett hefur verið fram kenning um byltingar. Þær verða þegar bilið milli væntinga um bættan hag og þess sem gerist verður óbærilegt. Vogun vinnur og vogun tapar. Hagstofan hefur nýlega sent frá sér Hagtíðindi þar sem kemur fram að skuldastaða heimilanna batnaði verulega á árunum 2010 til 2012. Heimilum með neikvæða eiginfjárstöðu hefur fækkað til muna. Í þessu ljósi má segja að mun auðveldara verði að setja heimsmetið. Í kosningabaráttunni lagði núverandi forsætisráðherra á það þunga áherslu að staðan í ríkisfjármálum væri mun verri en fegraðar tölur vinstri stjórnar sýndu. Fyrir nokkrum dögum sagði fosætisráðherra að staða ríkissjóðs væri svo góð að hann gæti hæglega greitt niður skuldir heimilanna og ætti nægan pening afgangs. Eitt er alveg ljóst. Forsætisráðherra hefur slegið alla út í hástemmdum lýsingum en í leiðinni sló hann alla út í mótsögnum.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar