12.9.2013 | 17:32
Þekkir Frosti ekki lög um FME?
Frosti Sigurjónsson er formaður mikilvægrar nefndar á Alþingi. Hann lýsti því yfir í viðtali við fjölmiðla að starfsleyfi Dróma verði ekki framlengt í mai næstkomandi. Nú er vald nefndarformanna talsvert og þeir hafa ýmis konar áhrif en hér fór Frosti yfir strikið. FME er sjálfstætt stjórnvald en lýtur ekki valdboði einstakra þingmanna eða ráðherra. Það er FME sem ákvarðar um starfsleyfi Dróma en Frosti má eins og allir aðrir hafa sínar skoðanir. Segja má að Drómi sé alræmt fyrirbæri í fjármálaheiminum og skelfilegar sögur fara af innheimtuaðgerðum. Kannski sér Frosti sjálfan sig sem riddarann glæsta sem drepur drekann ógurlega. Hvað um það en þannig er veruleikinn ekki. Kannski var rangt eftir Frosta haft og kannski hefur hann þegar leiðrétt misskilninginn. Afrek eru góð en að eigna sér afrek er ekki endilega gott.--Hafa ber það sem sannara reynist. FME hefur ekki veitt Dróma starfsleyfi. Drómi er eignarhaldsfélag sem stýrt er af slitastjórn Spron. Slitastjórnir eru eignarhaldsfélög og um þær gilda sömu lög og um bústjórn skiptastjóra. Leiðréttist hérmeð.---
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar