Hvað hindrar atvinnuvegafjárfestingu?

Einkenni kreppu er lág fjárfeting, lítil eftirspurn,offramleiðsla á kapitali og miklar skuldir. Atvinnuvega fjárfestingar hafa verið í lágmarki undanfarin ár. Hægri menn hafa kennt skattastefnu vinstri stjórnar um. Það hentar hugmyndafræði þeirra vel en kemur veruleikanum lítið við. Eitt helsta einkenni íslenskra fyrirtækja eftir hrun er afar mikil skuldsetning. Sjávarútvegsfyrirtækin hafa greitt erlendar skuldir hratt niður og nokkur þeirra hafa verulegt svigrúm til nýfjarfestinga. Nefna má Ísfélag Vestmannaeyja og Brim. Könnun innan SI hefur sýnt að skuldir íslenskra fyrirtækja eru tvöfalt meiri ef miðað er við hlutfall af Ebitda en er hjá fyrirtækjum almennt í Evrópu. Í fyrra voru heildarskuldir fyrirtækja 170% af vergri landsframleiðslu og höfðu lækkað mjög mikið frá 2008 en þá var hlutfallið 372%.  Um þessar mundir er álverð lágt, birgðir ákaflega miklar og mikil óvissa um framhaldið. Það er ljóst að gjaldeyrishöftin hindra starfsemi fyrirtækja með ýmsum hætti. Áhættufælni er meðal lánveitenda og fjárfesta. Þeir sem ráða yfir fjármagni til fjárfestinga eru lykilmenn í markaðskerfinu. Þeir hafa mikil völd. Þegar þeir sjá að forsendur hafa skapast fyrir nægilega arðsemi fjárestinga munu fjárfestingar vaxa að nýju.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband