Er umferðarmenningin að batna?

Umræða um umferðina er á fremur neikvæðum nótum í fjölmiðlum og samtölum fólks. Talað er um hraðakstur, glannalegar framúrkeyrslur, ofsaakstur ungs fólks og almennt tillitsleysi. Eftirlit lögreglu hefur minnkað mikið eftir hrun en umferð hefu einnig minnkað mikið. Þeir staðir á landinu þar sem alvarlegustu slysin verða eru vel þekktir en enn er beðið eftir úrbótum á nokkrum stöðum. En það er ekki bundið við Ísland að kvarta yfir umferðinni. Það þekkist víðar. En hvað segja tölurnar? Fjöldi banaslysa er svipaður á öllum Norðurlöndunum.  2012 eru þau fæst á Íslandi þegar miðað er við slys á hverja 100000 íbúa. Fyrri hluta þessa árs urðu samtals 513 slys og óhöpp hér á landi. Óhöpp án meiðsla urðu 442 en minniháttar slys 57. Alvarleg slys hafa orðið hafa orðið 13 og 7 banaslys. Allt árið 2012 létust 9 manns í umferðarslysum. Á árunum 2003 til 2012 létust 12 karlar að meðaltali á hverju ári. Sambærileg tala fyrir konur var 4.9 . 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband