14.9.2013 | 09:28
Ríki maðurinn nær sér á strik; mat Paul Krugman.
P Krugman ritar í bloggi sínu vaxandi ójöfnuð í bandarísku samfélagi og hvernig hann kemur í veg fyrir að þjóðfélagið lifi samkvæmt helstu gildum sínum. Samkvæmt hugmyndum um réttlæti eiga allir að vera metnir og komast áfram vegna hæfileika sinna. Réttlætið er í því fólgið að allir keppi á sama grunni. Efnahagslegur, félagslegur og menningarlegur ójöfnuður kemur í veg fyrir þetta. Það hafa ekki allir jafna möguleika til að komast í bestu háskólana svo dæmi sér tekið. Í Harward Business School eru skörp skil á milli venjulegra nemenda og þeirra sem koma úr afar auðugum fjölskyldum. Í fjármálakreppunni minnkuðu tekjur þeirra sem mestar höfðu nefna má fjármagnstekjur. Eftir kreppuna í hægum bata hefur ríkasta 1% verið sigri hrósandi. 95% af efnahagsbatanum frá 2009 hafa runnið í þeirra vasa. 60% af batanum fór til þeirra 0.1% sem mestar tekjur hafa. Tekjudreifingin verður sífellt ójafnari. Mikill meirihluti bandaríkjamanna lifa enn í kreppusamfélagi en það gera 1% svo sannarlega ekki. Það er öfugsnúið en stór hluti þessara tekna kemur úr fjármálageiranum þeim geira sem ríkisvaldið varð að koma til aðstoðar með miklum fjármunum. Skattpeningi frá almenningi. Þessi þróun grefur undan grunngildum lýðræðisins. Jafn réttur til náms víkur fyrir forréttindum. Virkt lýðræði víkur fyrir valdi peninganna. Krugman segir að við þessari þróun verði að bregðast en ekki sé hægt að endurtaka New Deal. Hann nefnir tillögu frá Bill de Blasio sem gæti orðið borgarstjóri New York. Hann vill að borgin útvegi öllum börnum vist á leikskóla. Hann vill fjármagna þetta með því að setja sérstakan skatt á tekjur yfir 500000 dollara. (P Krugman : Rich Mans Recovery í NYT)--Eru aðstæður svipaðar á Íslandi og í USA? Eru bankamenn hér að fá umframkjarabætur? Hverjir eru beinlínis að hagnast á ástandinu, t.d. vegna gjaldeyrishafta?
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar