16.9.2013 | 17:43
Af hverju eru efnavopn bönnuð?
Á ráðstefnu í Haag 1899 voru eitruð efnavopn og gas bönnuð í hernaði á alþjóðavísu. þrátt fyrir bannið var efnavopnum beitt í fyrri heimsstyrjöldinni. En þeim var eingöngu beitt gegn hermönnum. Í Genf 1925 var bannið enn ítrekað. Í seinni heimsstyrjöldinni voru efnavopn ekki notuð í bardögum en Hitler lét nota zykikon b eiturgas í útrýmingarbúðunum. Nánast allir menn líta á efnavopn sem skelfileg vopn vegna þess hvernig þau drepa og hvernig þau dreifast. Það eykur á skelfinguna hvernig vopnin eru notuð. Nánast allir ráðamenn virða bannið. Undantekning er Saddam Hussein sem notaði efnavopn í stríðinu gegn Íran og gegn Kúrdum og öðrum minnihlutahópum í Írak. 1995 beitti sértrúarhópur heimatilbúni taugagasi í neðanjarðarlestum Tokyo. Stjórnarher Sýrlands á miklar birgðir af efnavopnum. Þær eru nálægt 1000 tonnum og innihalda m.a. taugagasið sarin. Eftirlitsmenn SÞ telja öruggt að 21. 8. hafi sarin verið beitt í Sýrlandi.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar