17.9.2013 | 19:19
Þýskir jafnaðarmenn og staðan eftir kosningar.
Á sunnudaginn verður kosið í Sambandslýðveldinu Þýskalandi. Nýjustu spár gefa til kynn að hægri flokkarnir CSU/CDU fái 39% atkvæða. Jafnaðarmönnum SPD er spáð 25% atkvæða. Vinstri flokkurinn Die Linke fær 10% atkvæða samkvæmt spám og græningjar Die Grunen fá 9%. FDP frjálsir demókratar fá 5% , Piratar 3% og aðrir samtals 9%. Jafnaðarmenn segjast vilja starfa með græningjum en afar ólíklegt er að þeir fái nægjanlegan þingstyrk. Þá kemur til greina samstarf við hægri flokkana eða Grosse Koalition. Sigmar Gabriel formaður SPD á erfitt val fyrir höndum. Allt bendir til þess að Steinbruck kanslaraefni flokksins muni segja af sér að kosningum loknum. Gabriel veit að andstaða er við samstarf til hægri í hans eigin flokki. Merkel kanslari er vinsæll og hætt er við að Gabriel myndi falla í skuggann af kanslaranum. Gabriel yrði því að halda vel á spöðunum. Hann yrði að tryggja sér áhrifamikið ráðherraembætti. Utanríkismálin gætu komið til greina en þá myndi hann fjarlægjast innanríkismálin. Samstarf SPD við hægri flokkana kæmi Vinstri flokknum vel. Þeir gætu þá hamast gegn svikulum hægri-krötum. En enn eru nokkrir dagar í kosningar. Á fimmtudaginn munu jafnaðrmenn halda mikinn útifund á Alexanderplatz í Berlín. Þar mun Gabriel ekki tala um samstarf við hægri menn.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar