18.9.2013 | 21:25
Skapar hijab tortryggni?
Hijab er algengasta blæjan sem múslimskar konur á Vesturlöndum bera. Hún hylur hár, eyru, háls og stundum axlir. Andlitið er ekki hulið. Í Noregi var gerð rannsókn á viðhorfum Norðmanna til innflytjenda. Viðhorfin til múslima voru svipuð og til annarra hópa innflytjenda. Fólki voru sýndar myndir af konum og í ljós kom að hijab skiptir máli. Myndir af sömu konu með og án hijap leiddu í ljós að blæjan kallar fram tortryggni og óvissu. Blæjan skapar félagslega fjarlægð að því er virðist. Trú viðkomandi skipti ekki meginmáli heldur táknið. Níkab og búrkur hylja andlit konunnar nánast alveg. Sumir líta á blæjur sem tákn um kúgun kvenna. Fyrir öðrum eru þær tákn hógværðar og siðferðis.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar