19.9.2013 | 11:06
Íslenskur sjávarútvegur. Staða og horfur 2013.
Rétt er að minna á að sjávarafurðir eru mikilvægur hluti af fæðu landsmanna endaþótt greinin sé nánast hreinræktuð útflutningsgrein. Neysla á íbúa á ári er 88 kíló á íbúa á ári. 12% starfa á landsbyggðinni eru í sjávarútvegi en 1.5% starfa á höfuðborgarsvæðinu. Ebitda framlegð fyrirtækja í greininni hefur aldrei í sögunni verið meiri en 2011 en aukning frá fyrra ári var 26%. Síðustu ár hefur skuldetning fyrirtækja dregist hratt saman. Verðmæti útfluttra sjávarafurða nam 269 milljörðum króna 2012. Undanfarin ár hefur verið nokkur vöxtur í fiskeldi. Evrópa er mikilvægasta markaðsvæði íslenskra sjávarafurða. Mest er flutt til Bretlands, Noregs og Spánar. 78% starfsfólks í sjávarútvegi eru karlar en alls störfuðu í greininni 9000 árið 2012. Hér er ekki tekið tillit til afleiddra starfa. 50 stærstu útgerðirnar ráða yfir 86% af úthlutuðum kvóta. Hlutur stærstu útgerða hefur farið vaxandi undanfarin ár. Fjárfestingar eru litlar í greininni. Sem hlutfall af framlegð voru fjárfestingar 9% árið 2011 en áratuginn á undann var meðaltalið 26%. Íslenskum fiskiskipum er að fækka. Árið 2002 voru skráð skip 1935 en árið 2012 voru þau 1690 eða fækkun um 13%. Verðmæti útfluttra þorskafurða voru 83 milljarðar 2012. Nokkrar blikur eru á lofti í íslenskum sjávarútvegi. Verðlag á fiskafurðum í Evrópu, einkum Suður Evrópu fer lækkandi. Harðar deilur hafa staðið um fiskveiðistjórnun í áratugi. Út frá heildarhagsmunum þjóðfélagsins má segja að það sé óheppilegt. Sum stór sjávarútvegsfyrirtæki hafa fjárfest í öðrum og óskildum greinum. Stundum er rreynt að tryggja að allir þættir virðiskeðjunnar séu á einni hendi. Stundum er reynt að hafa áhrif á stjórnmálaumræðuna sjálfa. Það er gert með kaupum á fjölmiðlum. Fyrirtæki eiga að hafa ríka samfélagslega ábyrgð en eiga ekki að líta á hlutverk sitt út frá þröngum efnahagslegum einkahagsmunum.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar