22.9.2013 | 16:44
Stjórnarskipti í Þýskalandi.
Allt bendir til þess að ríkisstjórn A Merkel missi meirahluta sinn í kosningunum. Samkvæmt útgönguspám stóru sjónvarpsstöðvanna ARD og ZDF munu hægri flokkarnir fá 42% atkvæða en Frjálsir demókratar 4.5%-4.7% atkvæða og falla þar með af þingi. Í kosningunum 2009 fékk flokkurinn rúm 14% þannig að segja má að flokkurinn hrynji saman. SPD,jafnaðarmannaflokki Þýskalands er spáð 26% og bætir hann við fylgi sitt frá síðustu kosningum. Græningjum er spáð 8%, Die Linke er spáð 8.5% og tapa þeir heldur meir en Græningjar frá síðustu kosningum. Pírötum er spáð 2.3% og eru þeir langt frá því að komast á þing. AfD er spáð 4.8%-4.9%. Enn er óvissa af tvennum toga. Tekst annað hvort Frjálsum demókrötum eða AfD( evruandstæðingum) að koma mönnum á þing. Líklegast er þó að A Merkel verði að finna nýjan samstarfsflokk á næstunni. Hún er ótvírætt sigurvegari kosninganna. Nýjustu spár sjónvarpsstöðvanna benda til þess að hægriflokkarnir gætu náð meirihluta á þinginu Bundestag. Samkvæmt spá ZDF gætu hægri flokkarnir fengið 304 þingsæti af 606.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar