23.9.2013 | 12:17
Hvað er að Útlendingastofnun? 2. hluti.
Haustið 2005 virðast verða miklar breytingar á vinnulagi Útlendingastofnunar og Vinnumálastofnunar. Innflytjendum má skipta í tvo stóra hópa. Annars vegar er sá hópur sem kemur af EES svæðinu. Í EES samningi er kveðið á um frjálst flæði vinnuafls og ríkjum ESB hefur fjölgað mikið á undanförnum áratugum. Hinn hópurinn kemur frá löndum utan EES svæðis og lög og reglur um þennan hóp hafa íslensk stjórnvöld sótt aðallega til Danmerkur og Noregs. Löggjöf þessara landa er mjög ströng í innflytjendamálum sem er þó nokkuð háð túlkun. Í þessum málaflokki hafa íslensk stjórnvöld ekki mótað sjálfstæða stefnu. Breytingin haustið 2005 hafði það í för með sér að mjög erfitt eða nánast útilokað var fyrir fólk utan EES svæðisins að flytjast inn í landið. Lög voru túlkuð eins þröngt og hægt var og öllum lagaklækjum beitt. Ætla má að stjórnsýslan (og stjórnvöld?) hafi óttast mikinn straum fólks frá nýjum aðildarríkjum ESB. Útlendingastofnun heyrir undir innanríkisráðuneytið. Innanríkisráðherra hefur reglugerðarvaldið og ljóst að ráðherrann getur haft afgerandi áhrif á innrastarf og vinnulag stofnunarinnar. Vinnumálastofnun heyrir hins vegar undir félagsmálaráðuneytið.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar