23.9.2013 | 13:56
Er evran góð fyrir Þýskaland?
AfD flokkur evruandstæðinga náði athyglisverðum árangri í kosningnum þótt þeir næðu ekki manni á þing. Menntamenn og smáatvinnurekendur hafa verið áberandi í flokknum. Það er því eðlilegt að spyrja hver reynsla Þýskalands af evrunni og evrusvæðinu sé. Stutta svarið er : reynslan er góð og hagkerfið hefur dafnað. Öll stutt svör eru einföldun og það er þetta líka. Þýsk fyrirtæki hafa hagnast mikið á þeim möguleikum sem felast í sameiginlegum markaði og sameiginlegri mynt. Evrusvæðið er myndað 1999 og hagnaðarhlutfall þýskra fyrirtækja hækkar jafnt og þétt eftir tilkomu svæðisins. Útflutningur vara og fjárfestingar skiluðu miklum arði. Þýsk fyrirtæki gátu flutt starfsemi sína til landa Austur Evrópu þar sem framleiðslukostnaður(laun) voru miklu lægri en í heimalandinu. Mikilvægast var þó að hótunin um að flytja störfin úr landi hélt öllum launakröfum í Þýskalandi í skefjum. Hlutfallslegur launakostnaður fór stöðugt lækkandi og atvinnuleysið minnkaði mikið samtímis. 25% fólks á vinnumarkaði eru nú á lágum launum. (Minna en 2/3 af miðgildi).Þetta er mjög hátt hlutfall miðað við önnur lönd á evrusvæðinu. Fjöldi þeirra sem vinnu hlutastörf eða er ráðinn til skamms tíma hefur þrefaldast á síðustu 10 árum. Samkeppnishæfni Þýskalands byggist þannig m.a. á lágum launum. Á tímabili evrusvæðisins hefur landsframleiðsla á mann aukist um 33% en hins vegar eru raunlaun lægri en það voru 1999. Til lengri tíma litið á Þýskaland við ýmsa erfiðleika að etja. Meðalaldur þjóðarinnar er hár og fer hækkandi. Samkeppni frá Kína og öðrum ríkjum Asíu mun fara vaxandi. Kostnaðurinn við að halda evrusvæðinu mun vaxa.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar