24.9.2013 | 11:58
Íslensk leið úr kreppu eða ekki ?
Krónan er bæði góð og slæm. Hrun hennar hafði skelfilegar afleiðingar fyrir þá sem tóku verðtryggð lán og marga fleiri. En hrun krónunnar hjálpaði útflutningsgreinum vöru og þjónustu. Lágt raungengi þýðir að öðru jöfnu að samkeppnishæfi landsins vex. Það var Íslandi mjög hagstætt að þjóðir Norður Evrópu fóru ekki í djúpa kreppu eins og Ísland, Írland og ríki Suður Evrópu. Atburðir hafa góð og slæm áhrif. Hrunið hafði skelfilegar afleiðingar en um leið var það mikil auglýsing fyrir landið. Ísland varð forsíðufrétt í öllum fjölmiðlum. Gosið í Eyjafjallajökli olli margvíslegu tjóni hér og í öðrum löndum. En gosið var einnig mikil auglýsing fyrir landið og ein sú stærsta sem ferðaþjónustan hefur nokkurn tíma fengið. Landið hefur búið við höft en einnig háa vexti. Við slíkar aðstæður ættu háir vextir að vera óþarfir og gagnlausir en stefna AGS var að hafa háa vexti. Háir vextir hægja á hagkerfinu og gera framleiðslukostnað dýrari. Einhver fyrirtæki geta ekki staðið undir slíku. Leiða má að því líkum að stjórnvöld hafi ekki beitt sér nægilega gegn bönkunum og vogunarsjóðunum. Eiginfjárhlutfall banka er venjulega 8% en eftir hrun varð það hér 16%. Bankarnir gátu því safnað peningum og geymt þá á vöxtum hjá Seðlabankanum. Þeir peningar nýttust ekki til atvinnuuppbyggingar og til þess að koma atvinnulífinu af stað. Það er merkileg mótsögn en íslensku bankarnir sem hrundu eins og spilaborgir bera nú af hvað góða afkomu varðar í alþjóðlegum samanburði. Allar kreppur eru eins í gundvallaratriðum og íslenska kreppan er að flestu leyti dæmigerð fjármálakreppa. Gjaldeyrisvarasjóður Seðlabankans er stór en hann er fenginn að láni. Slíkt hefur vaxtagjöld í för með sér sem eru hærri en hugsanlegar tekjur. Gjaldeyrisvarasjóður sem byggist á sparnaði eða hagstæðum viðskiptajöfnuði er auðvitað af hinu góða. Fjárfesting á Íslandi-bæði innlend og erlend- er hættulega lítil. Við erum á svipuðu róli og Grikkland. Gjaldeyrishöftin eru eins og viðvörunaarmerki til erlendra fjárfesta : komið ekki hingað! Það er engin séríslensk leið útúr kreppunni. ( Viðtal við Jón Daníelson í þættinum Sprengisandi.)
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar