24.9.2013 | 16:06
Hvað er Amgen?
Amgen er bandarískt fjölþjóðlegt lyfjafyrirtæki. Það er stærsta líftæknifyrirtæki heims. Starfsmenn þess eru um 17000. Það hefur margvíslegt samstarf við fyrirtæki um allan heim. Fyrirtækið hefur verið gagnrýnt fyrir ýmislegt. Árið 1998 var fyrirtækið ákært fyrir rangar staðhæfingar um epogen og neupogen. Tveimur árum síðar greiddi fyrirtækið háa sekt. Fyrirtækið studdi E Kennedy með 5 milljón dollara framlagi. Þingmaðurinn lagði fram frumvarp sem tryggði Amgen og nokkrum öðrum fyrirtækjum sérleyfi á ákveðnum vörum. 2010 eyddi fyrirtækið 10.2 milljónum dollara í "lobbyisma". 2012 var fyrirtækið uppvíst að ólöglegri markaðssetningu. Á fyrstu árum fyrirtækisins átti það þátt í að þróa stera(?) sem hjólreiðamenn eins og L Armstrong notuðu síðar. 2013 var þróun lyfsins sensipar stöðvuð eftir dauðsfall í tilraun.(wikipedia.org)
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar