26.9.2013 | 13:49
Eru fyrirtæki að flýja Ísland?
Fyrir nokkru skrifaði formaður Samtaka iðnaðarins grein. Hann hafði áhyggjur að samkeppnishæfni landsins og óttaðist atgerfisflótta og flótta fyrirtækja úr landi. Nú hafa allmörg fyrirtæki flutt höfuðstöðvar sínar frá landinu. Gjaldeyrishöft og aðgengi að fjármagni skipta miklu. Forstjórar stórra fyrirtækja eins og Össurar hafa marglýst því yfir að ekki sé hægt að rekja fyrirtæki á alþjóðlegum markaði með höfuðstöðvar á Íslandi og örmynt sem gjaldmiðil. Margir óttast að fleiri fyrirtæki muni yfirgefa landið. En nokkur fyrirtæki er að koma til landsins. Nefna má líftæknifyrirtæki sem ætlar að hefja lyfjaframleiðslu hér á landi. Það er vegna þess að einkaleyfislöggjöf Íslands er slíkum fyrirtækjum sem framleiða samheitalyf hagstæð. Hjálmar Gíslason hjá DataMarket hefur skrifað mjög upplýsandi grein. Hann skrifar um íslensk sprotafyrirtæki og skýrir á ljósan hátt þær takmarkanir sem fyrirtækin búa við hér. Fjármögnunarmöguleikar eru litlir, þekking á alþjóðlegri markaðssetningu er lítil og fólk með sérmenntun er of fátt til að standa undir örum vexti. Það ríkir hörð samkeppni um það að laða til sín sprotafyrirtæki. New York og Boston eru borgir sem bjóða fyrirtækjum afar hagstætt umhverfi. Menn þurfa að glöggva sig vel á hver áhrif gjaldeyrishaftanna eru að mati Hjálmars. Ríkið þarf að styðja sprotafyrirtækin með framlögum úr Tækniþróunarsjóði og með skattaafslætti vegna rannsóknar og þróunarstarfs. Skattaafslátturinn er sérlega mikilvægur.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar