27.9.2013 | 21:30
Þýskir jafnaðarmenn ákveða viðræður við hægri flokkana.
Nú í kvöld ákvað miðstjórn flokksins að hefja viðræður. 250 fulltrúi tóku þessa ákvörðun. Í yfirlýsingu segir að almennir flokksmenn eigi að taka þátt í viðræðuferlinu. Jafnaðarmenn eru opnir fyrir viðræðum en ljóst er að þeir hafa ákveðnar áherslur. Kristilegir demókratar hafa þegar gefið til kynna að flokkarnir geti nálgast í skattamálum. Jafnaðarmenn munu leggja áherslu á fjölskyldustefnu og jafnrétti kynjanna. Þeir vilja efla velferðarkerfið og atvinnu. Flokksforustan vill að allir félagar flokksins en þeir eru 470000 taki endanlega ákvörðun um stjórnarsamstarf. Skoðanakannanir benda til þess að meirihluti flokksfélaga vilji stjórnarsamstarf við flokka kristilegra demókrata. Kanslaraefni flokksins Peer Steinbruck hefur dregið sig til baka úr forystu flokksins. Það eru því formaður flokksins Gabriel og formaður þingflokksins Steinmeyer sem munu fara fyrir viðræðum.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar