28.9.2013 | 09:44
Fátækt á Íslandi (1).
Ísland er ríkt að náttúruauðlindum. Hér má vinna mikla orku úr jörðu og fallvötnum. Ósnortin náttúra landsins er auðlind í sjálfu sér og dregur hingað vaxandi fjölda erlendra ferðamanna á hverju ári. Íslensk fiksimið eru auðug og nytjastofnar margir. Stutt er að sækja á miðin. 80% af orku landsins er seld erlendum fyrirtækjum á afar lágu verði. Hluti þjóðarinnar nýtur arðsins af heitu vatni með beinum hætti. Í kvótakerfi er gróði útgerðarfyrirtækja einokunargróði. Í dag erum við vitni að ofsagróða stórra útgerðarfyrirtækja sem ráða stærstum hluta aflaheimilda. Ferðaþjónustan er sú grein sem mest nýtur hruns krónunnar. Afar lágt raungengi laðar hundruðir þúsunda ferðamanna til landsins. Arðurinn af auðlindunum rennur ekki á réttlátan hátt til þjóðarinnar. Misskipting tekna og eigna hér á landi er svipuð og hjá nágranna þjóðunum. Erfitt er að skoða eignamyndun vegna þess að slóð peninganna dylst. Eftir hrunið býr ákveðinn hluti þjóðarinnar við ágæt kjör. Sýndarneysla þessa hluta þjóðarinnar er áberandi og verður enn meira áberandi þegar vegið er að velferðarkerfinu og hluti Íslendinga býr við fátækt. Fáfækt er sýnileg t.d. þar sem matargjafir fara fram en hún er dulin og reynt að dylja hana. Samkvæmt rannsókn Hagstofunnar voru árið 2011 rúm 40 þúsund íslendingar undir lágtekjumörkum eða í hættu á félagslegri einangrun eða 13.6%. Fyrir heimili með tvo fullorðna og tvö börn undir 14 ára aldri vour lágtekjumörk 322 þúsund árið 2011. Lágar tekjur þýða minni neysla á vöru og þjónustu. Líklegra er alvarlegra að hætta er á félagslegri einangrun og og að fólk hafi ekki efni á nauðsynjum eins og lyfjum og læknisþjónustu. Árið 2011 var lágtekjuhlutfallið 9.2%. Á þessu sama ári bjuggu 2% landsmanna við verulegan skort á efnislegum gæðum( skuldir, hafa ekki efni á venjulegum mat, hafa ekki efni á fríi/ferðalögum, enginn bíll,og lítill aðgangur að fjölmiðlum.) Þetta hlutfall er lágt á Íslandi í alþjóðlegum samanburði.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar