28.9.2013 | 10:45
Franklin Graham talar við Guð.
Páfi kaþólskra hefur látið þá skoðun í ljós að kaþólskir væru alltof uppteknir af samkynhneigð, fóstureyðingum og getnaðarvörnum. Það má til sanns vegar færa. Í Gamla og nýja testamentinu er aðeins minnst á samkynhneigð á örfáum stöðum. Jesús sjálfur minnist aldrei á samkynhneigð. Meðal annars þess vegna eru áherslur svokallaðra bókstafstrúarmanna og íhaldssamra guðfræðinga einkennilegar. Væntanlega eru þó allir kristnir menn sammála um að lesa eigi Gamla testamentið í ljósi orða og kenninga Jesú. Gamla testamenntið er rit sem verður til á löngu horfnu menningarsögulegu skeiði. Það sem þar er ritað er augljóslega háð stað og stund. Hvernig getur annað verið? Í þriðju bók Móses eru leiðbeiningar um það hvernig stunda skuli þrælakaup og þrælasölu. Ekki einu sinni bókstafstrúarmenn trúa þessu bókstaf eða taka leiðbeiningar alvarlega. Kannski hefur Guð sagt þeim að þessar greinar eigi ekki lengur við? Annað tengist þýðingum. Gamla testamentið er ritað á hebresku og þýðingar úr fornum textum eru ekki einfalt mál eða allra. Það er t.d. ljóst að félagslega fyrirbærið samkynhneigð í samtímanum á sér ekki algera samsömun við fyrirbærið á ritunartíma Gamla testamentis. Í Guðspjöllum Nýja Testamentisins er hvergi minnst beinum orðum á samkynhneigð. Það gerir hins vegar Páll postuli í nokkrum bréfum sínum. Framlag Páls í sögu kristninnar er ótrúlega mikið og hann á mikinn þátt í því að kristin trú breiðist út með undraverðum hætti. Í nokkrum bréfum Páls fordæmir hann ákveðnar kynlífsathafnir. Hvað hann er að fordæma nákvæmlega eru hins vegar guðfræðingar og grískufræðingar ósammála. Er hann að fordæma samræði karls og karls? Er hann að fordæma samræði karls og konu sem er eins og samræði karls og karls? Er hann að fordæma vændi ungra drengja? Fordæmir hann ekki samræði kvenna? Um þetta eru til mikil rit og fræðimönnunum virðist ekki hafa dottið í hug að gera það sem einfaldast er : að spyrja Guð.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar