Hjól græðginnar snúast.....

Jóhanna Sigurðardóttir hefur ritað grein í The Reykjavik Grapevine og lítur yfir farinn veg. Sýn Jóhönnu á aðdraganda hrunsins og hrunið sjálft er vel þekkt. Hún minnir á ummæli Carsten Valgreen fyrrum aðalhagfræðings Danske Bank frá því janúar 2009. Valgreen sagði að það að skipa fyrrverandi forsætisráðherra sem bankastjóra Seðlabankans hefði haft skelfilegar afleiðingar. Bankanum hafi verið stjórnað á ótrúlega ófagmannlegan hátt. Eitt af fyrstu verkum vinstri stjórnar hafi verið að skipta um yfirstjórn bankans en tap bankans hafi kostað ríkissjóð 270 milljarða. (Jóhanna er ekki ein um að gagnrýna Seðlabankann. Tveir hagfræðingar af austuríska skólanum hafa ritað bók og vilja rekja hrunið til rangrar stefnu bankans.) Vinstri stjórnin tók við búi í rústum. Bankakerfið hrunið, stór hluti fyrirtækja gjaldþrota, gjaldeyrisvarasjóður Seðlabankans horfinn, verðbólga 19%, vextir 18% , verðtryggðar skuldir vaxið hratt og mikið atvinnuleysi. Lars Christiansen , danskur hagfræðingur, var einn fárra sem spáði efnahagslegri kollsteypu árið 2008. 2012 taldi hann að miðað við dýpt kreppunnar hefði Ísland komið vel frá henni. Jóhanna telur að stórkostleg kosningaloforð Framsóknar séu helsta ástæða mikils kosningaósigurs Samfylkingar.( Um þetta atriði má eðlilega deila.) Jóhanna nefnir fleiri atriði eins og umsóknaraðild að ESB, stjórnarskrármálið, og óleyst skuldavandamál hluta heimila. Um núverandi stjórn segir Jóhanna að hún hygli hinum eignamestu og tekjuhæstu. Enn á ný snúast hjól græðginnar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband