Kosningar í Austurríki. Andstæðingar ESB með 30% fylgi.

Í kosningum í Austurríki hélt stjórn jafnaðarmanna SPÖ og hægri flokksins ÖVP velli. Meirihlutinn stendur tæpt og flokkarnir töpuðu fylgi. Kanslari heitir Faymann og er jafnaðarmaður. Jafnaðarmenn fengu 27.% atkvæða en hægriflokkurinn 23.8%. FPÖ sem er hægri flokkur fékk 21.4% og bætti verulega við sig. Græningjar fengu 11.5%. Flokkur Franks Stromachs sem er áttræður milljarðamæringur fékk 5.8% og komst á þing. Flokkurinn er andstæðingur evrusamstarfs.  Neos fengu 4.8% og komust einnig á þing en í Austurríki er 4% atkvæða lágmark. Á þinginu eru 183 sæti og hafa stjórnarflokkarnir og hafa stjórnarflokkarnir 99 sæti samtals. Í öðrum löndum Evrópu hafa andstæðingar ESB og evrusamstarfs boðið fram . Í Þýskalandi fengu AfD 4.8% atkvæða. Í Hollandi fékk PVV 10% og Sannir Finnar fengu 19.1%. Í mörgum málum sem snerta Evrópusamstarf er aukinn meirihluti (2/3) nauðsynlegur. Í Austurríki er landlægt að kenna Brussel um það sem vanrækt hefur verið í eigin ranni. Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála í Austurríki.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband