2.10.2013 | 09:38
Forsendur fjárlagafrumvarps standast ekki.
Ummæli Þorsteins Víglundssonar framkvæmdastjóra SA vekja nokkra athygli. Hann telur 2.7% hagvöxt óraunsæan( nema miklar breytingar verði á skömmum tíma). Gert er ráð fyrir 5.5% launahækkunum og 3% verðbólgu. Ekki er þetta sannfærandi ; mikil aukning framleiðni og batnandi viðskiptakjör? Styrking krónunnar? Kaupmáttat aukning ætti að 2.6% en er það raunsætt þegar fjárfesting er í lágmarki. Erlendar fjárfestingar hafa sína galla hefur mönnum skilist. Þorsteinn telur að hugmyndir um verðbólguþróun séu ekki raunhæfar. Reynslan sýni að 5.5% hækkun nafnlauna standist ekki. Þorsteinn er ósáttur við litla lækkun á tryggingargjaldi. Annars eru skoðanir manna á fjárlagafrumvarpinu af ýmsum toga. Stefán Ólafsson telur að um litlar breytingar sé að ræða. Frumvarpið sé í reynd framlenging á frumvarpi Vinstri stjórnar. Ef þetta er rétt merkir það ýmislegt ; öll kosningaloforð B og D hafa verið svikið!! Bókhald er túlkun og all nokkur skáldskapur. Jöfnuður á næsta ári virðist hreinn skáldskapur....
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar