3.10.2013 | 17:03
Fjárlög fyrir byrjendur.
Á hverju ári leggur stjórnarmeirihluti fram frumvarp til fjárlaga á Alþingi fyrir næsta almanaksár. Í frumvarpinu er gerð grein fyrir áætluðum tekjum og gjöldum ríkisins, veitt er heimild til að taka lán og selja eignir. Fjárlög eru eins konar rekstraráætlun fyrir ríkið. Gerð fjárlaga er alllangt ferli. Það fer af stað undir stjórn fjármálaráðherra og ráðuneyti, ríkisstofnanir og ýmsir fleiri aðilar taka þatt í því. Á Alþingi fær frumvarpið þinglega meðferð í nefndarstarfi og umræðum. Fjárlaganefnd er ein af fastanefndum þingsins og fær frumvarpið til umfjöllunar eftir 2. umræðu. Nefndin er einnig eftirlitsaðili Alþingis gagnvart framkvæmdavaldinu. Heildarjöfnuður er heildartekjur að frádregnum heildargjöldum. Frumjöfnuður er frumtekjur að frá dregnum frumgjöldum. Frumtekjur eru allar tekjur nema vaxtatekjur. Frumgjöld eru öll gjöld nema vaxtagjöld. Fjárlögum er skipt í liði og hefur hver liður sitt númer. Fyrstu tölustafirnir tákna ráðuneyti. Ríkisreikningur er ársreikningur ríkissjóðs. Hann á að skýra rekstur og stöðu ríkissjóðs og stofnana ríkisins.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar