7.10.2013 | 22:18
Ríkir og fátækir innflytjendur í Evrópu.
Í Miðjarðarhafinu drukkna hundruð fátækra flóttamanna en á sama tíma fá ríkir Kínverjar, Arabar og Rússar ríkisborgararétt í ríkjum ESB. Þeir sem borga tilskilið verð eru velkomnir en hinir ekki. Hver sem kaupir fasteign fyrir 70000 evrur í Lettlandi fær sjálfkrafa dvalarleyfi. Að minnsta kosti 2000 manns hafa látið lífið á Miðjarðarhafi síðan 2011. Á Spáni þurfa menn að fjárfesta í fasteignum fyrir 500000 evrur til að fá dvalarleyfi. Í Grikklandi duga 250000 evrur til að fá dvalarleyfi í 5 ár og í Portugal þurfa menn að reiða fram 500000 evrur. 290000 evrur er verðið í Ungverjalandi. Í ríkjum Evrópu eru lög um hælisleitendur og innflytjendur mjög ströng. En það eru ekki allir jafnir fyrir lögunum. Það er alveg ljóst að þessi mál verða til umræðu í ríkisstjórnarmyndun í Þýskalandi.
Um bloggið
Hrafn Arnarson
Tenglar
Mínir tenglar
- Næsta kreppa. Marxískur hagfræðingur skrifar um efnahagsmál.
http://thenextrecession.wordpress.com/
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar