Hanna Birna: nauðungarsölur verða ekki stöðvaðar.

Innanríkisráðherra hefur nú tilkynnt að nauðungarsölur verði ekki stöðvaðar. Það gerir hún í samráði við lögfræðinga ráðuneytisins. Þeir telja að réttur fjármálastofnana sé varinn af stjórnarskrá. Fyrir kosningar hafði Hanna Birna uppi stór og mikil orð um óréttlætið sem í nauðungarsölum fælust. Þessi orð reynast vera innantómt blaður. Marklaust blaður til að vinna augnablikssigur á flokksfundi. Nú hefur veruleikinn tekið við. Köld lögmál fjármagnsins ráðast. Hagsmunasamtök heimilanna og fjölmargir aðrir hafa lengi barist fyrir því að nauðungarsölur verði stöðvaðar. Sú barátta hefur ekki enn borið árangur. Framsóknarflokkurinn vann mikinn kosningasigur vegna stórfenglegra loforða um að leiðrétta verðtryggð lán  og bæta stöðu skuldugra heimila. Hvar eru nú efndir? Sjálfstæðisflokkurinn lofaði einnig miklu. Flokkar sem svíkja helstu kosningaloforð hafa gert sig sjálfa umboðslausa. Eignamissi fylgir skömm og uppgjöf. Eignamissir hefur félagslegar og tilfinningalegar afleiðingar fyrir þá sem fyrir verða. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Um bloggið

Hrafn Arnarson

Höfundur

Hrafn Arnarson
Hrafn Arnarson
Höfundur er áhugamaður um stjórnmál og þjóðfélagsmál.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband